20.11.1941
Sameinað þing: 15. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (56)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Ég hafði stefnt nokkurri ádeilu að hæstv, forseta fyrir það, að hann hefði gefið meiri vitneskju en æskilegt má telja um atriði, er fram hefur farið hér á Alþ. Ég býst varla við, að ummæli hv. þm. Ísaf. áðan hafi verið undirtektir hans í þá átt að vita þetta trúnaðarbrot samflokksmanns hans, og ég ætlaði ekki að beina neinum frekari örvum að hæstv. forseta í því tilefni en ég hef gert.

En sé dylgjum og digurmælum þessa alþekkta hv. þm. beint að mér, hefði mér þótt mannlegra af honum að neita að fylgja því, að málin séu lögð til hliðar, reyna að standa fyrir svörum í þessu ófrægilega álygamáli sínu, í stað þess að læðast svona aftan að í lítilmennsku sinni. Hefði ég gert ráð fyrir slíkri bardagaaðferð, hefði ég krafizt þess af forseta að taka málið fyrir og ganga til atkv. að því búnu, sjá hvort þessi þm. stendur einn eða fleiri kæra sig um að vera í tygi með honum.

Ég skora á hæstv. forseta að taka málin ekki út af dagskrá. Ég er ekki skyldugur til að liggja undir rógi og álygum, og ég á heimtingu á, að skýrt sé frá þessu máli gengið. En vilji Alþ. ekki koma nálægt málinu, þá getur það auðvitað komizt hjá því á þennan hátt.

Vegna þeirra orða, sem beint hefur verið að mér hér, ætla ég mér ekki að greiða atkv., — þar verða atkv. annarra þm. að ráða úrslitum.