20.11.1941
Neðri deild: 27. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (69)

Starfslok deilda

forseti (JörB) :

Þessi mun vera síðastur fundur deildarinnar á þessu þingi. — Ég vil fara fram á það við hv. þdm., að þeir feli mér og skrifara að undirskrifa gerðabók, og skoða ég það samþ., ef enginn mælir á móti því.

Ég vil þakka þdm. öllum góða samvinnu og óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.