20.11.1941
Neðri deild: 27. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

Starfslok deilda

Gísli Sveinsson:

Ég vil leyfa mér, fyrir hönd deildarinnar, að þakka hæstv. forseta góðar óskir í okkar garð, og sér í lagi vil ég þakka honum góða og röggsama fundarstjórn. Ég óska honum góðrar heimferðar og vona, að við eigum eftir að hittast heilir á næsta þingi, og þá til lengri þingsetu.