21.10.1941
Neðri deild: 3. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

4. mál, húsaleiga

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Eins og hæstv. Alþ. mun vera kunnugt, kom það berlega í ljós, þegar leið að þessu hausti, að vandræði mundu verða með húsnæði víða í bæjum og þorpum landsins. Sérstaklega kom þetta í ljós hér í Reykjavík við skýrslusöfnun þá, er fram-

kvæmd var um mánaðamótin ág. og sept. s. l. Þá kom í ljós, að fjölmargar fjölskyldur hér í bæ voru þá ýmist algerlega húsnæðislausar eða mundu verða það 1. okt. nú í haust. Bættust fleiri fjölskyldur í þann hóp um mánaðamótin sept. og okt., og var félagsmálaráðuneytinu kunnugt um, að ekki aðeins hér í Reykjavík, heldur einnig í kaupstöðum úti um land, í Hafnarfirði, á Ísafirði og í Vestmannaeyjum og á fleiri stöðum voru sams konar vandræði. Það þótti því nauðsyn til bera að gera einhverjar þær ráðstafanir, er bætt gætu úr þessum vandræðum, þó að til bráðabirgða væri, þar sem ekki væri unnt að ráðast þá í framkvæmdir, er björguðu fólki frá þessum vandræðum. Það voru því gefin út þau bráðabirgðal., sem hér liggja fyrir, þann 8. sept. s. l. Ráðuneytinu var ljóst, að þessi l. lögðu allþunga bagga á menn og mundu skapa að ýmsu leyti ýmis vandkvæði. En þar sem þörfin var svo brýn á einhverjum aðgerðum, er til bóta mættu verða, þó ekki gætu orðið nema til bráðabirgða, þótti einsýnt, að setja yrði slík l. sem þau, er hér ræðir um, frá 8. sept.

Eins og sjá má af frv., sem fyrir liggur, eru nokkur ný ákvæði í því, sem ekki voru í áður gildandi húsaleigul. Í fyrsta lagi, að óheimilt sé að segja upp leigusamningum um íbúðarhúsnæði, nema leigusala sé brýn þörf á því til eigin íbúðar. Í öðru lagi, að uppsagnir á húsnæði, sem fram hafa farið fyrir gildistöku l., en ekki hafa komið til framkvæmdar, skyldu vera ógildar, nema húseigandi sanni fyrir húsaleigun., að hann sé húsnæðislaus og þurfi þess vegna á húsnæðinu að halda til íbúðar fyrir sjálfan sig. Það var sérstaklega þetta ákvæði í bráðabirgðal., um ógildingu uppsagnar á íbúðarhúsnæði, sem búast mátti við, að gæti orðið til þess eitthvað að halda í skefjum þeim vandræðum, sem yfirvofandi voru, þar sem vitanlegt var, að sagt var upp fjölda fólks íbúðarhúsnæði þess m. a. í því skyni, að húseigendur og aðrir höfðu hugsað sér að ráða yfir meira húsnæði en áður. En þar sem húsnæðisvandræðin voru mjög mikil, þótti alls ekki fært að leyfa slíkt.

Í þriðja lagi er sett ákvæði um, að óheimilt sé að leigja öðrum en heimilisföstum innanhéraðsmönnum íbúðarhúsnæði. hetta, sem á venjulegum tímum er mikið neyðarúrræði, þótti eðlilegt og sjálfsagt eins og á stóð, að koma í veg fyrir það, að aðvífandi menn mættu koma íbúum bæja og kauptúna út á götuna með því að setjast að í íbúðunum, heldur var álitið, að heimilisfastir innanhéraðsmenn ættu að sitja fyrir íbúðunum. En gert er ráð fyrir, að undanþágu megi veita frá þessu ákvæði l. um utanhéraðsmenn, þegar alveg sérstaklega stendur á, og vár þá alveg sérstaklega hugsað um námsfólk utan af landi, út frá því, að það leitar að sjálfsögðu til Reykjavíkur, þar sem skólar eru flestir. Einnig var þar átt við þingmenn og aðra, sem utan af landi kæmu í opinberum erindagerðum til bæjarins og nauðsyn er, að dvelji hér í bænum, frá sjónarmiði þjóðfélagsins.

Þá er í fjórða lagi breytt ákvæðum áður gildandi l. um það, að ef íbúðarhúsnæði er heimildarlaust tekið til annarrar notkunar en íbúðar, þá er hér með þessu frv. hert frá því sem áður var, á ákvæðunum um viðurlög við því, ef svo er gert. Því að reynslan sýndi, að hér í Reykjavík voru menn, sem höfðu fé undir höndum og brutu þetta ákvæði l. og greiddu tilteknar sektir fyrir það, að þeir breyttu íbúðarhúsum í verzlunarhús. Þeir, sem brutu þetta ákvæði l., fengu smávægilegar sektir. Þótti rétt, að viðurlög yrðu meiri, ef slík lagabrot væru framin, til þess að hindra þau, og í því skyni eru hér ákveðnar 100 kr. dagsektir fyrir slík brot.

Loks eru felld úr gildi ákvæði um, að einmenningsherbergi eða einstök herbergi séu ekki háð húsaleigul. yfirleitt, því að það kom í ljós, að ekki var síður hörgull á einstökum herbergjum en íbúðum, enda voru ákvæði um þau í upphafi óviturlega sett, og var ég á móti því ákvæði frá byrjun, enda þótt hæstv. Alþ. samþ. það á sínum tíma.

Að öðru leyti hygg ég, að ekki þurfi að skýra þetta frv. og brbl. Vil ég mega vænta þess, að þessi l. gangi hraðbyri gegnum þingið, því að það orkar ekki tvímælis, að nauðsyn var að gera þessar ráðstafanir, jafnvel þó að þær hafi komið illa niður á einstökum mönnum. En svo brýn nauðsyn var á aðgerðum í þessu efni vegna almenningsheillar, að tvímælalaust þótti rétt að setja þessi lög. Þessi brbl., sem ég gat um, hafa bætt talsvert úr ástandinu í húsnæðismálum í flestum kaupstöðum landsins. Utan Reykjavíkur held ég, að þessi l. hafi einnig náð sama árangri og hér í bænum, að fólk sé ekki algerlega húsnæðislaust lengur.

Ég legg svo til, að þessu frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og allshn.