28.04.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (1003)

42. mál, aðstoð við íslenzka námsmenn á Norðurlöndum og í Þýzkalandi

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég geri ráð fyrir því, að hvor af þessum till. sem verður hér samþ., þá verði framkvæmdin með svipuðum hætti, því að ríkinu er skylt að sjá um þá Íslendinga erlendis, sem ekki hafa atvinnu. Ég held, að við höfum verið svo lánsamir að geta innt þetta hlutverk af hendi hingað til svo að viðunandi sé. Ég mun þó greiða atkv. með till. fjvn., því að ég álít, að styrkir til námsmanna geti því aðeins með réttu talizt námsstyrkir, að þeir ljúki náminu á sínum tíma, og jafnframt því að námsstyrkur er almennur styrkur, er hann einnig verðlaun. Ég álít, að till. hv. 3. þm. Reykv. é því of viðtæk. Síðustu árin hafa íslenzkir námsmenn verið styrktir meira en nokkru sinni fyrr, og veldur því einkum tvennt. Í fyrsta lagi vaxandi dýrtíð þar, sem þeir hafa stundað nám sitt, og í öðru lagi hefur ríkið haft möguleika til þess sem aldrei fyrr vegna góðrar afkomu.

Hv. 3. þm. Reykv. gerði fyrirspurn um það, eftir hvaða reglum styrkjum þessum hafi verið útbýtt til þeirra, er stunda nám vestan hafs. Eins og hv. þm. er kunnugt, var hinum föstu stúdentastyrkjum fjölgað í haust úr 4 upp í 10, eða 11–12 í framkvæmdinni. Jafnframt hækkuðu þeir að upphæð úr 1200 kr. upp í 3600 kr. Á sama tíma lét stjórnin rannsaka, við hvaða nám stúdentar dveldu nú erlendis, svo að af því mætti ráða, í hvaða námsgreinar mundi einkum vanta menn. Úthlutun þessara styrkja hafði menntamálaráð með höndum sem hinna fyrri námsstyrkja. Áður fyrr munu styrkirnir nær eingöngu hafa verið veittir þeim, er hæstum náðu einkunnum og höfðu auk þess góð meðmæli. Það mun að nokkru leyti nú farið eftir þessari reglu, og einnig eftir því, hvort umsækjendur þykja líklegir til að stunda það nám, er stjórninni þykir einkum vanta námsmenn í.

En hér munu nú einmitt staddir sumir þeirra, er með útbýtingu þessa styrks höfðu að gera, og geta þeir þá svarað þessu nánara.

Ég hef eitthvað heyrt um óánægju út af þessum styrkveitingum, eins og gengur, en um þann kvenstúdent, er hv. 3. þm. Reykv. nefndi, er mér ekki kunnugt sérstaklega, svo að ég mun ekki orðlengja það frekara.