30.04.1942
Sameinað þing: 10. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (1053)
77. mál, menntaskólinn í Reykjavík
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti ! Á síðasta reglulegu þingi var á þskj. 115 flutt till. í Sþ, frá Pálma Hannessyni og Bjarna Bjarnasyni, er hljóðaði svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa milliþinganefnd skólafróðra manna til þess að rannsaka kennslu- og uppeldismál þjóðarinnar og gera tillögur um skipun þeirra, þar sem stefnt sé að því að gera skólana sem hagfelldasta, samræma skólakerfið, ákveða betur en nú starfssvið hinna ýmsu skóla og sambandið þeirra á milli.“
Síðan hef ég ekki heyrt nefnd þessa nefnda og ekkert séð frá henni. Hér á þessu þingi munu liggja fyrir 4 eða 5 frv. um skólamál, en ekkert frá þessari nefnd. Nú er þetta mál flutt af þeim, sem var fyrsti flm. á þessari till. Og efnið er það sama, en bara þessu þrengra, að nú er það menntaskólinn einn. Það er líklega búið með alla hina skólana, en bara menntaskólinn eftir. Þegar rætt var um skólamál í Ed., var enginn ráðh. þar viðstaddur til þess að svara fyrirspurnum um þetta, en áður en ég greiði atkvæði um sams konar till. og í fyrra, en bara þrengra, langar mig til að vita, hvað liggur eftir hina nefndina, og hvort tvær nefndir eiga að starfa að þessum málum. Önnur að skólamálum almennt, en hin að menntaskólanum. Á þessu þarf ég að fá skýringu, áður en ég greiði atkv.