30.04.1942
Sameinað þing: 10. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (1055)

77. mál, menntaskólinn í Reykjavík

*Ísleifur Högnason:

Ég er samþykkur þeirri brtt., sem hér hefur komið fram, og get verið fáorður um það, sem flm. sagði.

Mér virtist gæta nokkurs kala til nemenda í ræðu rektors. Hann bar á nemendur; að það gætti talsverðrar afturfarar hjá þeim í ýmsum greinum, og finnst mér blátt áfram felast í því áfellisdómur á kennslukrafta skólans. — Nú, hvers vegna á menntaskólinn að vera í Reykjavík, en ekki uppi í sveit? Það er fyrst og fremst vegna þess, að hér eru saman komnar allar menntastofnanir ríkisins. Hér er háskólinn og allir skólar, hér liggja allir menningarstraumar þjóðarinnar, og hér er á einum stað saman komið allt það bezta, sem við eigum í vísindum og listum. Það er náttúrlega nauðsynlegt, að nemendur menntaskólans verði ekki einangraðir frá þeim menningarstraumum, sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.

Auk þess er það svo, að ef skólinn yrði fluttur upp í sveit, yrðu nemendur miklu ósjálfstæðari gagnvart kennurum skólans. Það er skammt að minnast þess, að skólarnir voru notaðir — og menntaskólinn sér staklega — til þess að útbreiða sérstaka stefnu í alþjóðamálum. Þar voru fluttir fyrirlestrar um Finnlandsmálin. Ég held, að fim. till. geti ekki borið af sér að hafa flutt þar ákveðna stefnu. Ég held nú, að þessi skóli hafi ekki orðið fyrir miklum áhrifum af þessu, hvort sem það var að þakka málflutningnum eða því, að nemendur höfðu tækifæri til þess að kynna sér málið frá fleiri hliðum. Það er ekki víst, ef skólinn hefði verið í Skálholti, að nemendur hefðu haft kjark til þess að koma með mótmæli gegn því, að skólinn væri fluttur. Þegar þeir eru einangraðir frá heimilum sínum, eru þeir ekki eins djarfir að láta í ljós skoðanir sínar á málunum. Það er sérstaklega það, að einangrun skólans getur verið hættuleg fyrir sjálfstæði nemenda og beygt þá undir þá kennara, sem vilja koma að ákveðnum skoðunum.

Um spillinguna í Reykjavík vil ég segja það, að það er ekki búið að mæla, hvar spillingin er mest. Það er vitanlegt, að það ber meira á slíkti þar, sem margt fólk er saman komið, en ég vit ekki, hvort fólk er heilbrigðara í sveitunum, þótt það sé uppburðarlausara þar en það er hér í Reykjavík. Ég held, að hv. þm. ættu að leiða hjá sér að leggja dóm á það. Það hafa margir komið auga á það, að uppeldisáhrifin séu hverfandi hér, en mig undrar, að kennarar skuli ekki hafa látið sér detta í hug að fá inn í skólana menn, sem hafa vit á lókmenntum og fögrum listum, til að flytja þar fyrirlestra og beina smekk nemenda inn á rétta braut. Þetta virðist vera nauðsynlegt, en andinn hér í þinginu er nú sá í garð listamanna að reka í þá hornin:

Um aðstöðumuninn í Reykjavík og úti á landinu er það að segja, að í staðinn fyrir að gera öllum erfitt að sækja skólann, mætti jafna aðstöðumuninn með því, að það opinbera greiddi beinlínis styrk fyrir nemendur utan af landinu til þess að sækja skóla hér í Reykjavík. Ég veit, að fjöldi efnilegra unglinga utan af landi mundi hafa áhuga á námi hér í Reykjavík, en efnahagurinn leyfir það ekki. Með ríflegum fjárstyrk og með heimavist hér í Reykjavík, mætti jafna þennan mismun, og álít ég, að það sé það, sem fyrst og fremst ætti að gera.

Ég ætlaði ekki að vera langorður og læt því þetta nægja í bili.