05.05.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (1069)
77. mál, menntaskólinn í Reykjavík
*Sigurður Kristjánsson:
Það er nú orðið nokkuð langt síðan þetta mál var hér síðast til umr. Þegar ég kvaddi mér hljóðs, var það til að svara einu sérstöku atriði, sem fram kom hjá hv. flm. Þegar við ræddum um það, hverjar hættur væru á leið námsmanna í menntaskólanum hér, vildi hv. flm. gera allmikið úr því, hvað ýmsar freistingar gætu raskað því, að námsmenn gengju þá lífsbraut, sem ætlunin var að grundvalla með náminu. Ég sagði, að þessi röskun tefðist við það að taka mennina burt frá öllum freistingum, því að sá, sem ætlar sér að verða nýtur þjóðfélagsborgari og athafnasamur maður, hlýtur að mæta öllu þessu sama á lífsleiðinni, og er ekkert líklegra en að honum mundi verða ráðafærra, þegar hann kæmi sem fullorðinn maður út í lífið, en verið hefði, ef hann hefði alizt upp við hætturnar. Sagði ég, að að mínu áliti væri eins gott að grisja fyrr en síðar. Út af þessum ummælum mínum sagði hv. þm., að hann kynni ekki við að slátra nemendunum eins og kálfum. Mér fannst þetta einkennilega til orða tekið og fjarri lagi að leggja slíkan skilning í orð mín. Ég ætlast til að grisjað verið af sjálfu sér, en ef maðurinn reynist veikur fyrir, komi sú röskun, sem samfara verði veikleika hans, heldur fyrr en síðar. Þegar menn koma til skólanáms, hvort sem þeir eru settir til mennta eða ætta sér að brjótast áfram af eigin rammleik, er það oft, að þeir komast að þeirri niðurstöðu, að þeir vilja fara út í athafnalífið; áður en því námi er lokið, sem í upphafi var tilgangur skólagöngu þeirra. Má vel vera, að þeir taki slíka ákvörðun eftir að hafa kynnzt lífinu á nokkuð harkalegan hátt, t.d. í sumarvinnunni. Þannig er það oft, að menn, sem hafa stundað nám í Reykjavík, hafa söðlað um og gerzt sjómenn eða farið út í viðskiptalífið. Þeir hafa sagt skilið við bóknámið, og er ekkert til þess að segja. Menn verða að finna sjálfa sig og velja sér það starf, sem bezt á við hæfileika þeirra og viðhorf gagnvart lífinu.
Vera má, að hv. flm. hafi átt við, að það yrði að fella menn frá prófum fyrir sakir vanrækslu, og er miklu betra, að það sé gert þegar í skóla, en að menn rembist af veikum mætti við að ná prófum, en verði svo að fella þá frá starfi í lífinu. Þeir þurfa ekki að verða utanveltu í þjóðfélaginu fyrir því. Síður en svo.
Ég minntist lítils háttar á hina fjárhagslegu hlið málsins, sem sé, að eðlilegt væri og þarflegt, að skólinn væri í fjölmenninu, til þess að sem flestir ættu kost á að njóta hans án mikils kostnaðar í öðrum landshluta. Í sambandi við þetta vil ég minnast litið eitt á þá staðhæfingu hv. flm., að það hefði sérstaklega góð áhrif á unglinga að þurfa að berjast sjálfir fyrir námi sínu. Eflaust hefur það það á suma, að mæta miklum erfiðleikum og þurfa að vinna baki brotnu. Það herðir marga, en ég hygg, að hinir séu fleiri, sem hafa orðið skipbrotsmenn vegna fjárhagsvandræða og umkomuleysis. Ég ætta líka, að þeir séu færri, sem hafa haft óhapp af því að ei?a efnaða að, en hinir, sem hefur orðið það til góðs að verða að brjótast einir áfram. Það er algengt að heyra talað um, hve eftirlætisbörn fari illa, en þetta er hin herfilegasta villukenning. Það er einmitt ógæfa margra okkar, að foreldrar hafa ekki haft ráð á að kosta gott uppeldi börnum sínum. Þessi fátækt hefur hamlað mörgum Íslendingnum, og einmitt það að geta notið menntunar þrátt fyrir litinn efnahag, með því t.d., að skólarnir séu í fjölmenninu, hjálpar mörgum yfir þann örðuga hjalla, sem efnaskorturinn er.
Ég skal ekki lengja mál mitt. Mér hefur heyrzt, að flestir telji það misráðið að stofna til þess að flytja menntaskólann upp í sveit. Ég endurtek það, að ég sé enga örðugleika á því að byggja skólann upp á þeim glæsilega stað, sem hann stendur á nú, og ég er sannfærður um, að þar er hann bezt settur. Mér skilst á hv. flm., að hann hafi í skólastjórn sinni rekið sig á ýmsa annmarka á því að hafa nemendur í fjölmenninu. Ég efa ekki, að ýmsum varúðarreglum þarf að beita, en ef hann ætlar af þessum ástæðum að flýja með skólann upp í sveit, mæta honum bara nýir örðugleikar. Það verður að sigrast á örðugleikunum hér.