05.05.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í D-deild Alþingistíðinda. (1071)
77. mál, menntaskólinn í Reykjavík
*Eiríkur Einarsson:
Ég vil nú láta í ljós það, sem mér býr í brjósti, hvað þessa till. snertir, einkum um síðari hluta hennar, um möguleika á að flytja skólann að Skálholti í Biskupstungum. Mér finnst, að þegar litið sé á till., þá sé ekki harðlega komizt að orði, aðeins minnzt á þann möguleika, hvort þetta reyndist tiltækilegt, þegar rannsókn færi fram á þessum málum. Þó að svona till. yrði samþ., er ekki þar með sagt, að skólinn yrði fluttur að Skálholti. Þegar þessi rannsókn yrði framkvæmd, kæmi í ljós, hvort þetta væri tiltækilegt eða ekki. Ég vil segja um þessa uppástungu, sem hér liggur fyrir, að hún er ekki svo ákveðin, að voðalegt væri að samþ. hana. Ég skil vel rök .hv. flm. og get vel fallizt á sumt, sem hann sagði. En mér hefur dottið í hug, hvort ekki væri réttara að breyta orðalagi í niðurlagi till. Þar er gefið í skyn, að hinn almenna menntaskóla í Reykjavík skuli fella niður og flytja hann að Skálholti. Mér hefur dottið í hug að flytja skrifl. brtt. á þá leið, að í stað orðanna „hvort ekki sé tiltækilegt að flytja skólann“ o.s.frv. komi: að reisa menntaskóla í Skálholti. Ég hef ekki trú á því, þó að sú verði niðurstaðan við þessar rannsóknir, að menntaskólinn verði fluttur að Skálholti, að hann verði lagður hér niður. Höfuðstaður landsins er orðinn það fjölmennur og það magnaður af menningu, að menntaskólinn yrði hér eftir sem áður. Enda er svo komið, að þrátt fyrir menntaskólann hafa aðrir skólar við hliðina á honum fært svo út starfssvið sín, að ekki vantar nema herzlmuninn á, að þeir útskrifi stúdenta. Það yrði ekki nema ofurlítil árétting að leyfa slíkum skólum að útskrifa stúdenta, og svo yrði, ef menntaskólinn yrði svo fjarlægur. Ég vildi gefa till. þennan blæ, að menntaskóli yrði reistur í Skálholti, án tillits til þess, hvort hann væri í Reykjavík eða ekki, og yrði meira svigrúm, þegar til rannsókna kemur. Ég býst við, að frá sjónarmiði sumra muni þetta lita svo út, ef mín till. yrði samþ., sem Alþ. væri að leggja drög að stofnun þriðja menntaskólans, og það sé ekki gerlegt. En ef maður lítur á málið eins og það liggur fyrir, þá er, hvað till. snertir, ekkert sérstakt að segja, jafnvel þó að menntaskólar væru í Rvík, í Skálholti og á Akureyri. Samgöngur eru nú orðnar svo góðar, að litlu skiptir, hvar skólarnir eru, nema hvað kaupstaðina snertir og þá sérstaklega Reykjavík, þar sem nemendur geta búið heima hjá sér, meðan skólinn starfar. Hvað Akureyrarskólanum viðvíkur, þá er lað metnaðarmál Akureyringa að hafa menntaskólann í sínum fjórðungi, og um það er ekki nema. gott að segja. Ég held, að þegar málið er athugað og rannsakað á breiðum grundvelli, þá komi ekkert, fram, sem væri glæfralegt við fjárhagshlið málsins, þó að sumir menn líti ef til vill þannig á málið nú: Þeir verða að gera sér grein fyrir því, hvernig skólamálum okkar er nú komið, ef þeir telja slíka framkvæmd ógerlega. Það úir og grúir í landinu af alls kyns skólum, sem haldið er uppi með ærnum kostnaði; sumir eru sérskólar, með starfbundin og staðbundin verksvið. Svo eru aðrir skólar, sem eiga að veita almenna fræðslu. Ég álít, að við þurfum að rannsaka alla okkar skólaskipun og hagnýta okkur þá niðurstöðu, sem nú þegar hefur aflazt um skólahaldið. Ég er mjög óskólafróður maður, en ég vil aðeins benda á, hvort ekki sé hér möguleiki til að reisa skóla í Skálholti og hagnýta sér þá reynslu þar, sem fengizt hefur með Menntaskólanum í Reykjavík.
Ég vil með þessari brtt. minni skapa málinu breiðari grundvöll, þegar til rannsóknar kemur. Mun ég nú afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.