08.05.1942
Sameinað þing: 13. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í D-deild Alþingistíðinda. (1103)
34. mál, lögreglueftirlit utan kaupstaða
*Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Ég get látið nægja að vísa til nál. um þetta mál. N. leggur til, að það verði samþ. með breyt., er kemur fram á þskj. 330: Að vísu hefur einn nm. skrifað undir með fyrirvara, og mun hann eflaust gera grein fyrir afstöðu sinni.
Að öðru leyti skírskota ég til grg. og umræðna um þetta mál og vona, að þessi till. verði samþ.