21.05.1942
Sameinað þing: 19. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (1126)

134. mál, stjórnarskrárnefnd

Einar Olgeirsson:

Herra forseti ! Ég var búinn að minnast á það við fyrri umr. þessa máls, að ég mundi bera fram brtt. í samræmi við þá skoðun, sem ég þá hélt fram um, að það væri rétt, að allar mismunandi skoðanir, sem til eru í þinginu um stjórnarskrármálið, kæmu fram í n., og því væri rétt, að allir flokkar hefðu rétt til þess að gera sínar till. og taka sinn þátt í undirbúningi undir stjórnarskrárbreyt. eða samningu hinnar nýju stjórnarskrár. Því miður hefur mér ekki verið unnt að koma þessari brtt. á framfæri, til þess að hún yrði prentuð. Vil ég því biðja hæstv. forseta um að leita afbrigða fyrir skriflegri brtt. um þetta fyrir mig. Þessi brtt. er við brtt. á þskj. 422 og er á þessa leið:

„Í stað orðanna „Alþingi ályktar að kjósa 5 manna milliþinganefnd“ komi: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa 5 manna milliþinganefnd eftir tilnefningu stjórnmálaflokkanna á Alþingi, einn mann frá hverjum flokki.

Ég álít, að ef það er vilji þingsins að undirbúa stjórnarskrána sem rækilegast í nefnd og að sjá til þess, að sem mest af því starfi, sem miðar að því að komast að niðurstöðu um það, hvernig hún eigi að verða, ef það er vilji þingsins, að þetta eigi að gera í nefnd, en ekki á þingfundi, þá verða allir stjórnmálaflokkar, sem sæti eiga á Alþ., að eiga fulltrúa í þessari n. Ef þessu er hagað á annan hátt en þennan, hlýtur afleiðingin að verða sú, að mjög margar brtt. koma fram við stjskr., ef aðeins sumir af flokkum þingsins taka þátt í undirbúningi málsins, og þá gæti málið dregizt óþarflega mikið á langinn. En af því að það er vitað, að það á að reyna að afgreiða málið á sumarþinginu, verður að reyna að tryggja það, að undirbúningur málsins í þessari n. verði sem beztur. Ég vil leggja á þetta þó nokkra áherzlu, sérstaklega gagnvart þeim, sem vilja afgreiða stjórnarskrármálið á sumarþinginu. Virðist a.m.k. engin ástæða til þess, að hinir stærri flokkar hér á þingi séu að reyna að tryggja sér í þessari n. fleiri menn en svo, að einn sé þar frá hverjum flokki. Ég býst við, að um það, sem snertir hrein þjóðfélagsleg mál í sambandi við undirbúning stjskr. verði leitað álits sérfræðinga. Það, sem þess. vegna hefur þýðingu í sambandi þið skipun þessarar n., eru hinar pólitísku skoðanir, sem um það kunna að vera innan þingsins, hvernig haga skuli hinu og þessu um stjórnarfar landsins.

Það er talað um, að það þurfi sem mest að vanda til stjskr., það þurfi að ræða hana og prófa í ljósi reynslunnar hina ýmsu þætti hennar um framkvæmdarvaldið, dómsvaldið, löggjafarvaldið, vald ríkisstj. o. þ. h. En þetta verður svo bezt gert, að þær mismunandi skoðanir, sem fyrir hendi eru á þessu þingi og verða á næsta þingi, komi sem greinilegast fram í sambandi við undirbúning þessa máls. Ég álít þess vegna, að það væri misráðið af stærstu flokkunum hér á þingi að leggja einhliða áherzlu á það að nota meirihlutavald sitt til þess að hafa — t.d. stærstu flokkarnir — tvo pólitíska fulltrúa hvor um sig í þessari nefnd.

Ég held, að ég þurfi nú ekki að hafa lengri formála fyrir þessari brtt. Ég var búinn að lýsa skoðun minni rækilega um þetta atriði við fyrri umr. málsins, en vil biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir þessari brtt.