04.05.1942
Neðri deild: 50. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í B-deild Alþingistíðinda. (1164)

36. mál, eftirlit með skipum

*Frsm. (Finnur Jónsson):

Þetta frv. er til þess fyrst og fremst að koma á eftirliti með hreinlæti um borð í skipum. Í öðru lagi er það til þess að koma á þeirri reglu, að skip, sem sigla á milli landa með fisk og ekki eru skyldug til þess að hafa hleðslumerki samkvæmt alþjóðareglum, verði látin hafa hleðsluborð og hleðslumerkjaskírteini til að fyrirbyggja ofhleðslu, sem oft er talin hafa átt sér stað að undanförnu. Og í þriðja lagi miðar það að því að ákveða, að skip, sem nefnd eru farþegaskip, samkv, siglingareglugerð, megi ekki flytja benzín. Þetta þykir sjálfsögð öryggisráðstöfun, eins og siglingum er nú háttað hér við land.

Frv. þetta er komið frá Ed. Sjútvn. þessarar hv. d. hefur ger t á því nokkra breyt. í samráði við skipaskoðunarstjóra og sjútvn. Ed. Hún leggur því til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem er á þskj. 248.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, en óska að brtt. verði samþ. og málinu vísað til 3. umr.