23.03.1942
Efri deild: 21. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)

50. mál, aðstoðarlæknar héraðslækna

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti í Mér skilst, að þetta frv. fái þær undirtektir hér, að því muni verða vel borgið, ef auðu stólarnir taka eins undir það og þeir, sem menn sitja í.

En ég vil gera aths. við það, sem fram kom hjá tveimur ræðumönnum hér og hv. frsm. taldi vandkvæði á, að bæta kjör þessara lækna. Hv. frsm. taldi, að allshn. mundi ekki telja sig þess megnuga að endurskoða launal. landsins. Við óskum ekki beint eftir, að hún geri það. En ef ég man rétt, eru ekki mörg ár síðan ástandið með prestana var talið líkt og nú á sér stað um læknana. Það var talið, að ekki fengjust menn inn í sum prestaköllin, því að þeir hefðu ekki þann eldlega áhuga fyrir starfinu, svo að þeir þyrftu að hafa aðrar hvatir til þess, að þeir fengjust til að taka að sér þá atvinnu að prédika fyrir lýðnum. Og þá var breytt launakjörum þeirra, ég held með þáltill. þannig, að prestar í verri prestaköllum voru settir strax á full laun, eins og þeir væru búnir að þjóna í 15 ár.

Væri nú ekki athugandi fyrir hv. allshn., hvort hún gæti ekki fetað í þau fótspor, sem þá voru stigin gagnvart prestunum, í þessu máli gagnvart læknunum og lagt til slíkar uppbætur til læknanna, eins og þá var veitt prestunum? Nú er sagt, að til séu nógir prestar í öll þessi prestaköll, sem erfitt var áður að fá presta í, — ástandið breyttíst með launakjörunum. Og ég hygg, að hér væri hægt að fara svipaða leið gagnvart læknunum.