01.04.1942
Efri deild: 26. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)

50. mál, aðstoðarlæknar héraðslækna

*Bjarni Snæbjörnsson:

Ég vildi bara leyfa mér að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann vildi sjá svo um, að þessi tvö mál, þetta og það, sem er nr. 2 á dagskránni, um lækningaleyfi, verði tekin af dagskrá nú, því að mér skilst, að þessi tvö mál eigi að fylgjast að. Fer ég fram á þetta vegna þess, að mér hefur ekki unnizt tími til þess að semja brtt. við frv., sem gætu farið í þá átt, að þá gæti orðið eitthvert samkomulag milli þingsins annars vegar og Læknafélags Íslands hins vegar um lausn þessa máls. Það er nú einungis ein vika síðan 2. dagskrármálið var hér til 1. umr. Nú fer páskafríið í hönd, og á þeim tíma ætti maður að geta komizt að einhverri sæmilegri niðurstöðu í þessu máli. Væri því mjög æskilegt, ef hægt væri að taka málin bæði nú af dagskrá, og þá væri hægt að hafa málið til umr. fyrsta dag eftir páska. Og þá þyrfti það ekki að seinka málinu um nema einn einasta dag frá því sem ef það væri afgr. hér í dag. Ég vænti þess, að hæstv. forseti og hv. þd. vilji fallast á að taka þessi mál af dagskrá nú og hafa þau á dagskrá fyrsta dag eftir páskafríið.