01.04.1942
Efri deild: 26. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)
50. mál, aðstoðarlæknar héraðslækna
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Hv. þm. Hafn. leggur áherzlu á að, að málið verði tekið af dagskrá og væntir þess, að samkomulag muni verða um brtt. við þetta frv. Nú vil ég benda honum á það, að hann hefur alveg látið undir höfuð leggjast að láta nokkuð skína í þessar brtt., sem eiga að vera til samkomulags. Eftir allar hans bollaleggingar um málið, sem staðið, hafa yfir í 2 klukkutíma, hefur honum ekki dottið í hug vað koma með skrifl. brtt., sem hann þó gæti, ef hann hefur trú á því, að það geti orðið til þess að leysa málið. Þetta hefur hv. þm. Hafnf. ekki gert, og held ég því, að það, sem hann átaldi mig fyrir í fyrri ræðu sinni, hafi ekki verið rétt, að ég hefði sveigt að sér um það, að hann mundi vilja málið feigt. Þessum hv. þm. fórst ekki betur en svo, að það, sem hann sagði, að mér hefði orðið á í ræðu minni, það varð honum einnig á í enn ríkara mæli. Bendir þetta ekki einmitt í þá átt; að hv. þm. sé hugleikið, að málið fái ekki fram að ganga? Hann átelur mig fyrir það, að ég hafi sagt, að frv. sé beinlinis komið fram af fjandskap við læknastéttina. Þetta á alls ekki við í umr. Það er ekkert í frv., sem bendir á, að ég hafi viljað koma fram með fjandskap gegn læknastéttinni. Ég tel þessi frv. vera tilraun til þess að bæta úr því hörmulega ástandi, sem víða ríkir hér á landi í þessum efnum. En ég mun ekki ræða málið á þeim grundvelli nú. Enn fremur sagði hv. þm. Hafnf., að ekki væri rétt að afgreiða málið nú, þar sem sá nm. væri fjarstaddur, er einn hefði viljað hlusta á fulltrúa lækna. Þetta er fjarstæða, því að vel er hægt að votta það, að n. hlustaði með þolinmæði á öll þau rök, er fulltrúi Læknafélags Reykjavíkur hafði fram að bera. Ég sé sannast að segja ekki ástæðu til að taka málið út af dagskrá, þegar ekki eru betri rök færð fyrir því en þau er þessi hv. þm. kemur með. Hv. þm. fullyrðir, að landlæknir hafi sagt sér, að þetta frv. á þskj. 80 væri fram komið til þess að bæta úr læknisþörf héraðslækna um aðstoðarmenn, Ég læt alveg ósagt, hvort landlæknir hefur sagt þetta við þennan,hv. þm., en ég hef hér í höndunum grg. frv., og þar segir landlæknir nákvæmlega á þessa leið: „Með frv. þessu er gerð tilraun til að bæta úr erfiðleikum, sem á því eru að fá lækna með litlum eða engum fyrirvara til að gegna til bráðabirgða læknishéruðum, sem þörf er á, bæði þegar læknaskipti verða í héraðinu, svo og þegar héraðslæknar þurfa að bregða sér frá um stundarsakir sér til hvíldar og upplyftingar, eða forfallast af einhverjum ástæðum“ Þarna setur landlæknir því í fremstu röð læknislausu héruðin, og einmitt með því skilyrði gerðist ég flm. þessa frv. Ég verð að segja það, að mér finnst
þessi hv. þm. ekki hafa vandað til ræðna sinna sem skyldi. Hinu mun ég á engan hátt reyna að draga úr, að hann hefur reynt hér á Alþ. að halda uppi hagsmunum læknastéttarinnar, þó að með því sé alveg ósannað, hversu vel honum hefur tekizt að halda uppi málstað hinna læknislausu héraða hér á landi. Ég er sannfærðari nú en áður um, að það er jöfnum höndum viljinn fyrir að tef ja fyrir málinu, að hv. þm. vill taka það út af dagskrá. Ræða hans sýnir það bezt.
Ég sé enga ástæðu til að fresta málinu nú. Miklu frekar mælir allt með því: að afgreiða það nú í dag, því að ef Nd. fær málið núna, þá getur hún tekið það fyrir fyrsta virkan dag eftir páska, að öðrum kosti ekki.
Það er bezt að segja hverja sögu eins og hún er. Ég vil þá hreinsa allshn. af þeim ummælum, að hún hafi sýnt fulltrúum lækna lítilsvirðingu. Hitt er annað mál, að ég get ekki sannfærzt af rökum þeirra manna. Ég tel lausn þá, er frv. fer fram á, á engan hátt ugglausa, en . þó reynandi. Mér fellur mjög miður, að Félag læknanema í háskólanum skuli taka þessari kvöð á þann hátt eins og ég hef fulla ástæðu til að ætla, að þeir hafi gert, sem sé þannig, að hún sé fram komin af andúð gegn stéttinni, því að ég hafði vænzt þess af yngri kynslóðinni, að hún vildi telja, að einstaklingarnir eigi að vera til fyrir þjóðina, en ekki þjóðin fyrir einstaklingana.