24.04.1942
Neðri deild: 41. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (1206)
50. mál, aðstoðarlæknar héraðslækna
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Frv. þetta, sem flutt var í Ed., er um, að heimilað skuli að verja fé úr ríkissjóði til að skipa og launa 4 aðstoðarlækna. Hugsað er til þess, að þeir verði til aðstoðar héraðslæknum, sem mikið hafa að gera, og einnig megi grípa til þeirra til að þjóna læknislausum héruðum.
Nefndin telur nauðsyn, að frv. nái samþykki — og þá með þeirri breytingu einni, að heimilað sé að greiða. hverjum aðstoðarlækni allt að 900 kr. á mán., en samkv. frv. allt að 300 kr. á mánuði. Sú rýmkun er talin óhjákvæmileg.