20.05.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (1304)
139. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Ásgeir Ásgeirsson:
Frv. það, sem þm. Alþfl. hafa flutt hér á Alþ. um breyt. á kosningafyrirkomulaginu í landinu, vekur nú miklar umræður og verður aðalkosningamál eftir rúman mánuð. Hermann Jónasson sagði í gær, að frv. væri upphaflega flutt af hrekkvísi, en sé nú orðið úlfakreppa fyrir flm. Ekki eru nú hvatirnar góðar og árangurinn eftir því. En þegar betur er að gáð, þá kemur í ljós, að jöfnun atkvæðisréttar og leiðrétting á kjördæmaskipuninni hefur frá upphafi verið eitt af aðalmálum Alþfl. Þegar á þingi 1917 flytur Jörundur Brynjólfsson þingsályktunartillögu um réttlátari skipun kjördæma og fulltrúa á Alþingi. Árið 1930 flytur Alþfl. þáltill. um, að tryggja beri kjósendum jafnan rétt til áhrifa, hvar sem þeir búi á landinu. Snemma hefur hrekkvísin byrjað og ekki að undra, þótt flokkurinn lendi nú í þeirri „úlfakreppu“ að þurfa að fylgja til sigurs einu af elztu og stærsta áhugamálum sínum. Flokkurinn er sjálfur að vissu leyti til orðinn fyrir tilflutning fólksins og gerbreytta atvinnuhætti í landinu, og það viðfangsefni, sem hér liggur fyrir, á rætur sínar. að rekja til sömu orsaka. Sér er nú hver hrekkvísin ! Og úlfakreppan er eftir því !
Sú kosningaskipun, sem gilti hér frá 1974, er í meginatriðum óbreytt fram til 1915, þegar landskjörið var upp tekið í stað hinna konungkjörnu. En þá, á stríðstímum, verður sú meginbreyt., að hlutfallskosningar til Alþingis eru uppteknar á 6 þm. Síðan eru árið 1920 teknar upp hlutfallskosningar í Rvík í sambandi við þingmannafjölgun, — og í bæði skiptin var það ekki ágreiningsmál, að hlutfallskosningar væru sjálfsagðar. Það hefði alveg eins, ef það hefði þótt hentara, mátt kljúfa stærri kjördæmin og Rvík líka og hafa alls staðar kosningar í einmenningskjördæmum. Árið 1933 er landskjörið fellt niður í sinni gömlu mynd og tekin upp 11 uppbótarsæti, en þau eru í rauninni ekki annað en hlutbundið landskjör, þar sem tillit er tekið til úrslita í kjördæmakosningunni. Þessar till. eru allar gerðar til þess að jafna atkvæðisrétt og allar gerðar á þann veg, að gömlu kjördæmin eru látin halda sér og uppbætur eða hlutfallskosningar auknar. Þetta er hin óslitna þróun í kosningasögu landsins.
Þessar breytingar hafa allar orðið í samræmi við þróunina í þeim ríkjum, sem okkur eru skyldust. Árið 1899 eru hlutfallskosningar teknar upp í Belgíu, 1906 í Finnlandi, 1909 í Svíþjóð, — árið 1915 í Danmörku, á stríðstíma, 1917 í Hollandi, á stríðstíma, 1918 fyrir sambandsþingið í Sviss, líka á stríðstíma. Og samt segir hv. þm. Str. í gær, að engri þjóð hafi áður hugkvæmzt að taka upp kosningarréttarmál á ófriðartímum. 1919 var svo hlutfallskosning upp tekin í Noregi. Þessar þjóðir eru okkur einna skyldastar, líkar þjóðir með langa sögu og auðuga menningu. En mér hefur skilizt, að hlutfallskosningar hafi alls staðar leitt til hruns, spillingar og einræðis. Þetta er merkileg uppgötvun, að innrásin í Danmörk, Noreg, Holland og Belgíu hafi verið gerð og tekizt vegna þess, að þessar þjóðir höfðu hlutfallskosningar í staðinn fyrir einmenningskjördæmi, — og ef rétt er, þá væri okkur skylt að láta þessi tíðindi þegar berast til Sviss og Svíþjóðar til þess að forða þessu þjóðum frá bráðan bana. Hugsið ykkur, hve einfalt það er að taka bara upp einmenningskjördæmi uppbótarlaust, — og geta kannske sparað sér hálfar þjóðartekjurnar, sem nú fara til landvarna. Það er ekki að því að spyrja, að ef frv. okkar verður samþ., þá verður ekki langt að bíða innrásarinnar.
Og misvitur finnst mér Hitler hafa verið, þegar hann egndi til ófriðar lönd, sem ekki höfðu hlutfallskosningar, eins og U.K. og U.S.A. Hefði ekki verið miklu hyggilegra fyrir hann að beita sínum mikla, leynilega undirróðri til að koma fyrst á hlutfallskosningum í þessum löndum og ráðast svo á veikar þjóðir, — spilltar af jafnrétti?
Ég þarf ekki að bæta því við, að ég trúi ekki á þessa uppgötvun. Hún er eins og leynilega vopnið, sem aldrei kom fram, og lifir sennilega ekki einu sinni fram að kosningum. Smáríkin eru okkur skyldari en hin stóru, þau eru hreyfanlegri og hafa í ýmsu tilliti betri skilyrði til að taka upp nýmæli og jafnrétti. Í Englandi er engin almenn óánægja með kjördæmaskipunina. Þar hefur þó oft verið breytt til batnaðar, og á þessari öld var háð hin mikla deila milli House of Lords og House of Commons með árangri, sem allir þekkja. En þar var síðasta áratuginn bæði einmenningskjördæmi, sem gaf Íhaldsfl. 100 þingsæti frá Alþfl., og þjóðstjórn, sem hafði samkomulag um það að loka augunum fyrir viðfangsefnum yfirstandandi tíma, með þeim árangri, að heimsveldið var í byrjun þessa ófriðar komið á heljarþröm. — Svo að ekki bjargar misréttið í kjördæmaskipuninni eða þjóðstjórnarfriðurinn alltaf. — Í U.S.A. eru að vísu ekki hlutfallskosningar, en við kosningar til House of Representatives eru kjördæmi jöfnuð á 10 ára fresti skv. stjórnarskrárákvæði, og senatið stöðvar aldrei lengi ítrekaðar samþykktir neðri deildarinnar. Svo ólíku er þar saman að jafna eða hér, þar sem koma frá 300 og upp í 2500 atkv. á þm. við kjördæmakjör. En það, sem mestu máli skiptir, er, að allar þjóðir, sem okkur eru skyldastar, hafa fyrir löngu tekið upp hlutfallskosningar, — og hvergi komið til greina að stíga spor aftur á bak til einmenningskjördæma einna saman og óréttar.
Þær tilraunir, sem hér hafa verið gerðar til að ná hlutfallslegu réttlæti milli kjósenda og þingmannatölu, hafa enn ekki tekizt til fulls, þó að þær hafi gert mikið gagn. Ef engin væru uppbótarsætin, þá hefði við síðustu kosningar Framsfl. fengið 1 þm. fyrir hverja 766 kjósendur, Sjálfstfl. 2011, Alþfl. 2216, Bændafl. 3578 og kommúnistar 4932. En uppbótarsætin hafa þó fært þessar tölur niður í: Sjálfstfl. 1419, Alþfl. 1385, Bændafl. 1789 og kommúnistar 1644. Um það mun öllum óvilhöllum mönnum koma saman, að þessi mismunur er þó meiri en við verði unað. Enn eru leikreglurnar þær í okkar þjóðfélagi, að einn flokkurinn telst hafa unnið kosningarnar, ef hann hefur runnið hálft skeiðið á sama tíma og hinir flokkarnir hafa komizt alla leið. Ég verð að segja það, að aðrar reglur eru látnar gilda í bændaglímu, og er það þó íslenzk íþrótt, frá þeim tímum, þegar landið var allt eitt „dreifbýli“.
Þegar gera skal tillögur um að ráða bót á þessu mikla misrétti, þá liggur næst að athuga, hvaðan það stafar. Og þá verður fyrst fyrir, að í 6 tvímenningskjördæmum fær við síðustu kosningar einn flokkur ca. 6600 atkvæði og 12 þingmenn, en aðrir flokkar 6400 atkvæði og engan þingmann kosinn. Hér hlýtur eitthvað að vera að, því að hvað lágar hugsanir sem menn gera sér um „réttlætið“, þá verður þessu ekki bót mælt. Það má að vísu segja, að uppbótarþingsætin komi þessum afskiptu kjósendum til góða, en svo þarf þó ekki að telja, því að þau nægja ekki einu sinni til að bæta öðrum stærri kjördæmum misréttið. Það er meira formsatriði að telja frambjóðendur utan kaupstaða komast að á þeim, og sízt geta þeir borið fyrir sig uppbótarsætin, er nú lýsa fjandskap sínum við það fyrirkomulag, þótt áður hafi þeir tekið þátt í stofnun þeirra. Sannleikurinn er sá, að það, sem er mest úrelt í kosningafyrirkomulagi okkar, eru tvímenningskjördæmin. Þeim voru áður ætlaðir tveir þm., vegna þess að þau voru mannfleiri en einmenningskjördæmin, en nú er því ekki lengur að heilsa og margs konar ruglingur orðinn á um mannfjölda einmennings- og tvímenningskjördæma. Er vart nema tvennt til, annað það, að skipta tvímenningskjördæmum eða hitt, að taka upp hlutfallskosningar í þeim, eins og annars staðar þar, sem kosnir eru fleiri þingmenn en einn.
Hin fyrri leiðin, að skipta þeim, leiðir til þess, að skipta verður einnig hinum stærstu einmenningskjördæmum, og það leiðir til þingmannafjölgunar, sem margir amast eðlilega við, — en þó er það höfuðgallinn, að því meir sem einmenningskjördæmunum er fjölgað, því meir eylat þörfin á uppbótarsætum, ef þau eiga að hrökkva til jöfnunar, eins og tilætlunin er, og það mundi leiða til enn meiri þingmannafjölgunar. Aftur á móti mundi hlutfallskosning í tvímenningskjördæmum verka eins og uppbót fyrir dreifbýlið sjálft og draga þannig úr þörfinni fyrir uppbótarsætin í öllu landinu, og er það höfuðkosturinn. Þá er tvímenningskjördæmunum gefin ný merking og um leið nýr réttur, sem er í samræmi við kosningafyrirkomulag okkar að öðru leyti. Þeir ókostir, sem þessari skipun kynnu að fylgja, upphefjast aftur af uppbótarsætunum, sem eru fyrir landið allt. Með þessu móti verður kosningaskipulag okkar tvenns konar: Annars vegar einmenningskjördæmi og hins vegar hlutfallskosningar í kjördæmum, sem hafa fleiri en 1 þm., og við landskjör 11 menn. Ég er viss um, að þess verður skammt að bíða, ef þessi breyt. nær fram að ganga, að allir telji hana sjálfsagða og velti því helzt fyrir sér, hvaða hlutverki tvímenningskjördæmi hafi í rauninni átt áður að gegna í kosningakerfi landsins.
Um aðrar brtt. frv. okkar Alþfl.-manna: Siglufjörður sérstakt kjördæmi og Reykjavík viðbót 2 þm., virðist ekki vera teljandi ágreiningur. En um þessa breytingu, hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum, hefur risið það Ramavein, að það er eins og allar ógnir nútímans hverfi annað kastið fyrir þessari litlu og réttlátu breytingartillögu. Það er bent til Þýzkalands og sagt, að hlutfallskosningar þar hafi steypt lýðveldinu og skapað 20–30 flokka. Mér er það alveg óskiljanlegt, að hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum geti skapað nokkra 20 flokka. Þar er aðeins rúm fyrir 2, og þeir flokkar eru þegar til og jafnvel fleiri. Það komast aldrei 20 flokkar að í tvímenningskjördæmunum, þó að þar séu hlutfallskosningar, og þeir, sem eru næst sterkastir þar, eru engu síður sveitamenn en hinir, sem fá hæsta atkvæðatölu.
En nú segir máske einhver: Hvernig var það með bændaglímuna hjá þér? Átti ekki sá að vinna, sem var sterkastur? Jú, ég er ekki búinn að gleyma því. Ef úrslit kosninganna giltu aðeins kjördæmið, þá ætti ég skilið að vera minntur á, en svo er ekki. Almennar kosningar til Alþingis eru bændaglíma fyrir allt landið. Og það gerir mismuninn. Þarna liggur einmitt skýringin á því undarlega misræmi, sem sumum finnst máske í röksemdaleiðslu fylgismanna og andstæðinga þessa frv. Það, sem andstæðingar þessa frv. kalla réttlæti, er, að stærsti flokkurinn í hverju kjördæmi fái allt, hvort sem það er einn eða tveir þm., en hinir flokkarnir ekkert, þó að þeir séu jafnvel í meiri hluta samtals. En við fylgismenn frv. köllum það eitt réttlæti, að meiri hluti þjóðarinnar fái meiri hl. á þingi og réttar minni hlutans sé þó tryggður, en því verður hvorugu náð nema með hlutfallskosningum og uppbótarsætum, sem eru sama eðlis.
Andstæðingar frv. finna líka, að málstaður þeirra er veikur. Þeim virðist kappsmál að telja mönnum trú um, að hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum séu bara yfirskin og að hér liggi eitthvað á bak við, svo sem eins og stór kjördæmi með hlutfallskosningum eða að gera allt landið að einu kjördæmi. Þetta er vottur um, að þeir óttist, að kjördæmabreytingin veki enga skelfingu eins og hún var samþykkt á þingi í vor og það þurfi einhverja grýlu til að ráða niðurlögum hennar. Um þetta get ég bara sagt, að það er tilhæfulaust, að nokkuð liggi á bak við. Enda vita kjósendur það, að aðrar breytingar verður að bera undir þá síðar, og væri þá nógur tími til að svara. Nú er það eitt til umræðu, sem í frv. felst.
Andstæðingar kjördæmabreytingarinnar finna það líka, að til þess að afstýra hlutfallskosningu í tvímenningskjördæmum þurfa þeir að reiða öxina að rótum hlutfallskosninganna yfirleitt, enda spara þeir ekki að gera þær tortryggilegar, eins og væru þær rót alls ills í stjórnmálum. En þar er höggið reitt of hátt, enda taka þeir ekki afleiðingunum og bera fram till. um afnám allra hlutfallskosninga í landinu. Í Búnaðarfélaginu er það talið nógu gott að hafa hlutfallskosningar; hlutfallskosningar eru taldar beztar fyrir þingnefndir, kosning efri deildar o.s.frv. Kjördæmaskipunarfrumvarpið sjálft var athugað í 9 manna nefnd, sem kosin var hlutfallskosningum, svo að það er máske ekki við góðu að búast.
Það er ekkert nýmæli hér á landi, að kosningarréttur eigi að vera jafn. Árið 1900 ritar Páll Briem amtmaður grein í Eimreiðina, þar sem hann segir, að atkvæði kjósenda „eigi að vera jöfn, eigi aðeins er snertir þann mann, sem hann vill kjósa, heldur og þann flokk, er hann vill fylgja að málum“. Hér er sú krafa, sem nú er gerð, orðuð skýrt og afdráttarlaust, og 1905 og 1907 ber Hannes Hafstein fram frv. um hlutfallskosningar, að vísu í stórum kjördæmum, en aðaltilgangurinn var að tryggja réttlát hlutföll, svo sem hér er gert. Þá var ekki fundin sú leið, sem getur sameinað gömlu kjördæmaskipunina og réttláta útkomu. Hannes Hafstein talar um „þá góðu og sanngjörnu kosningaaðferð, sem komi í veg fyrir þau rangindi, er vel geta átt sér stað eftir núgildandi lögum, að jafnvel minni hluti kjósenda getur algerlega ráðið úrslitum kosninga“. Og Lárus H. Bjarnason segir: „Umhyggjan fyrir réttu hlutfalli milli meiri og minni hluta er í alla staði réttlát. Hver flokkur á að geta komið að jafnmörgum fulltrúum og hann er sterkur til.“ Jón Magnússon segir, „að þing verði þá rétt ágrip af þjóðinni“. Og Ólafur Briem, sem síðar var formaður S.Í.S., segir: „Hlutfallskosningar hafa mjög mikla yfirburði fram yfir aðrar og gera mönnum mögulegt að sameina sig í einn flokk, þó þeir búi ekki á sama stað.“ Og Þórhallur Bjarnarson biskup segir: „Fyrir mér eru góð hlutfallskosningalög kappsmál, því þau eru runnin af rót réttlætishugsjónarinnar.“ Mér finnst ekki ólíklegt, að þessi vitni gætu róað einhverjar hrelldar sálir.
Það er veikleikamerki, þegar öxin er reidd of hátt. En hitt ber þó enn skýrari vott um veikan málstað, þegar umræður fara mest út í þá sálma, sem eru þessu máli í eðli sínu óviðkomandi, svo sem það, hvort forsvaranlegt sé að hafa kosningar eða flytja ágreiningsmál á ófriðartímum.
Í fyrra var tekin sú einstæða ákvörðun að fresta kosningum um óákveðinn tíma. Ég var einn í hóp þeirra manna, sem eiga sökina eða sómann af því. Það var margt kvíðvænlegt og óvenjulegt þá á seyði. Landið hafði að vísu verið hertekið í eitt ár, en þó var ófriðurinn í kringum okkur þá að byrja. Íslenzkum skipum hafði verið sökkt, landið hafði verið lýst á hernaðarsvæði. Umtalið um Atlantshafsorustuna var þá nýbyrjað og jafnvel búizt við úrslitum hennar á því sumri. Það lá í loftinu, að við kynnum að verða að taka mikilsverðar ákvarðanir um landvarnir á hverri stundu. Hugurinn var órór, og þingheimur ákvað að fresta kosningu.
En síðan hefur ýmislegt komið á daginn, sem ekki varð séð fyrir. Strax og kosningafrestunin var ráðin, fór að brydda á tillögum, sem virtust eiga rót sína í því, að ekki þyrfti að líta framan í háttvirta kjósendur. Þegar leið á sumarið, fór upplausnin vaxandi í ríkisstjórninni, og haustþing var ekki þesslegt, að einn hugur væri ríkjandi. Eitthvað hefur verið að síðan kosningunum var frestað. Ég hygg, að flestir þm. hafi gert þá uppgötvun, að það er illt þingi að sitja umboðslaust, að sú taug er sterk og viðkvæm, sem tengir saman þing og þjóð, og að þinginu hætti til að visna upp, ef á hana er höggvið. Ég hygg, að við séum flestir komnir á þá skoðun, að hvað sem öðrum hættum líður, þá sé sú hættan ekki minnst, sem felst í því að fella niður kosningar. Kosningar eru svo stór þáttur í skipulagi okkar, að þær verða ekki felldar niður til lengdar að ósekju.
Við höfum einnig séð, að á ófriðartímum er ekki hægt að lifa við þann frið, sem er fólginn í því að leiða hjá sér ágreiningsmál. Tímarnir, eins og þeir eru, hafa stækkað öll viðfangsefni og heimta skjótari ákvarðanir. Með kosningafrestuninni myndast djúp milli þjóðar og þings, og þingið verður veikara gagnvart ríkisstjórninni. Það eru kosningarnar einar, sem geta hnýtt aftur hið lifræna samband, sem á að vera milli þjóðar, þings og ríkisstjórnar. Við erum nú farnir að venjast betur hinu óvenjulega ástandi og vitum, að ekki einungis stjórn og þing, heldur líka þjóðin þarf að gera sér grein fyrir ástandinu og hinum nýstárlegu viðfangsefnum. Enginn veit, hve lengi ófriðurinn varir, og meðan rás viðburðanna er svona ör, veitir ekki af kosningum — og það máske oftar en á venjulegum tímum. Við höfum lært það, að kosningum má aldrei fresta nema um skamman tíma og þá einungis vegna óvæntra atburða. En þegar hinn fyrri kvíði er liðinn hjá, — þá á að kjósa. Það er undarlegt lýðræði, sem lýsir sér í því að tala um það ábyrgðarleysi að stofna til kosninga, og enn einkennilegra að kalla það „vígaferli“ að bera fram tillögu um, að kosningaúrslit verði sem réttust mynd af þjóðinni. Allt það tal er fráleitt og ætti að falla niður.
Það er skiljanlegt, að kosningum var frestað síðastliðið vor, en hitt er óumdeilanlegt, að þeim á ekki að fresta lengur, ef okkur verður sjálfrátt. Það á að ganga hreint til verks um að leysa viðfangsefnin, sem fyrir liggja, þó að umdeild séu.
Þeirra á meðal eru kosningaskipulagið og sjálfstæðismálið. Og það er gleðiefni, að meiri hluti Alþ. hefur orðið ásáttur um að ljúka þeim á þessu ári. Kosningafyrirkomulagið er kallað viðkvæma mál. En þar ber að líta meir á viðkvæmni þeirra, sem verða fyrir misréttinum, en hinna, sem njóta þess. Sjálfstæðismálið er einnig að færast í burðarliðinn. Þau 2 ár, sem liðin eru síðan sambandið við Norðurlönd slitnaði, hafa skilað því nær markinu. Þjóð okkar verður það til sóma að hafa leyst bæði málin á þessum viðsjártímum í öruggri von um, að frelsi og jafnrétti haldi velli í heiminum. En fari allt á annan veg en við vonum, þá verða þó þessar ákvarðanir okkar sams konar leiðarljós og uppörvun og Eiðsvallafundurinn var Norðmönnum í nærfellt heila öld.