14.04.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í D-deild Alþingistíðinda. (1328)
10. mál, fangagæzla
*Eiríkur Einarsson:
Þó að ég sé lögfræðingur í banka, get ég ekki hrósað mér af þeirri framtakssemi að hafa farið að Litla-Hrauni. Það er ekki heldur tilefni ræðu minna, að ég ætli að leggja dóm á aðbúðina þar. Tilefni mitt til að standa upp var það, að það greip mig sá hugur vinnuvísindanna að nota tækifærið til að koma að öðru atriði varðandi Litla-Hraun. Ég kemst á þann hátt hjá því að gera sérstaka fyrirspurn.
Á síðasta þingi bar ég fram þáltill., sem náði samþ., um, að fangagarðurinn skyldi fluttur frá Litla-Hrauni, þar eð slíkar fangabúðir ættu ekki að vera settar í öðru eins fjölbýli og er í kringum Litla-Hraun. Landareigninni er þannig í sveit komið, að hún er skákaland inni á milli engjalanda borgaranna, og er harla óviðkunnanlegt, að fangarnir séu alveg ofan í hinum starfandi borgurum, og er enda hætta á, að slíkt skapi meiri eða minni árekstra.
Engin ákvæði eru um það, að þarna skuli fangahús vera um aldur og ævi. Annmarkarnir á að hafa fangana þarna geta orðið svo verulegir, að nauðsynlegt sé að flytja fangagarðinn burt. Í þáltill. minni gerði ég grein fyrir óánægju almennings í þessu sambandi. Ég veit, að sú óánægja grefur um sig, og verður óþolandi að hafa fangagarðinn þarna, alveg án tillits til þess, hvernig hann er rekinn.
Ég bið velvirðingar á, að ég skyldi smeygja þessu atriði inn, en skylt er skeggið hökunni. Ég vona, að ég fái fyrirspurn minni svarað, hvernig á því stendur, að Alþ. samþykkt, sem gerð var hér á síðasta þingi, hefur enginn gaumur verið gefinn.