20.04.1942
Neðri deild: 38. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (1348)

70. mál, stríðsgróðaskattur

Skúli Guðmundsson:

Það eru aðeins örfá orð. Hv. þm. Seyðf. véfengdi, að það væri rétt, sem ég sagði um þá till., sem áður kom fram frá Alþfl. um þessi skattamál. En eins og ég áður veik að, var í till. þeirra gert ráð fyrir að takmarka mjög rétt bæjarfélaganna til útsvarsálagningar. Hv. þm. var að tala um félag, sem hefði 6 millj. kr. gróða og gæti eftir þessu haft 2 millj. og 400 þús. kr. eftir, þegar það væri búið að greiða skatta, að vísu þar af hátt á aðra millj. kr. bundnar í varasjóði og nýbyggingarsjóði. En eins og ég benti á áður, hefði þetta félag, ef það hefði notað sér möguleika þá, sem fólust í till. Alþfl. um nýbyggingarsjóði, getað haft eftir af þessum tekjum 41/2 millj. kr., þegar búið væri að greiða skatt og útsvar. Og þó að það hefði ekki lagt nema helming af tekjunum í nýbyggingarsjóð, þá hefði það þó alltaf haft eftir 1/2 millj. kr. eða rúmlega það, þegar skattar voru greiddir, eftir þeim till. sem þá lágu fyrir frá Alþfl.

Það var rétt hjá hv. þm. Seyðf. (HGj, að samkv. frv. flokks hans átti tekjuskattur og stríðsgróðaskattur að fara samtals upp í 90% af tekjum yfir 250 þús. kr. En hann gat þess ekki, að í þeim till. var ekkert um það að hætta að draga frá skatta og útsvör við ákvörðun skattskyldra tekna. Og Alþfl. vildi þá ekki á það fallast, þó að fulltrúi hans í fjhn. hafi lýst yfir, að hann geti nú á þetta fallizt eins og komið er, án þess að hans flokkur hafi átt neitt frumkvæði í þessu efni. En þó að ákveðið hefði verið að taka jafnvel 100% af skattskyldum tekjum í skatta og útsvar, þá hefði það í raun og veru ekki verið nema 50% af hreinum tekjum, ef frádráttur skatts og útsvars frá tekjunum við ákvörðun skattskyldra tekna hefði ekki verið afnuminn, sé gert ráð fyrir jöfnum tekjum í a.m.k. 2 á, hvert eftir annað. Ég veit ekki, hvort hv. þm. Seyðf. hefur gert sér það ljóst, hve mikill munur er á því að taka 90% í skatt af tekjum, áður en skattur og útsvar er dregið frá þeim, og hinu að taka 90% af tekjunum, eftir að búið er að draga þessi gjöld frá þeim. En ég vænti, að aðrir sjái, að töluverður munur er á þessu tvennu. En hvergi var að því vikið í till. Alþfl., sem ég minntist á, að það ætti að afnema skatts- og útsvarsfrádráttinn. Og til þess var ætlazt í till. Alþfl., að þetta frv. þeirra um stríðsgróðaskatt, ef Samþ. hefði verið, hefði gilt fyrir árin 1941 og 1942 miðað við álagningu á tekjur áranna 1940 og 1941. En það eru tekjur ársins 1941, sem hér er um að ræða að skattleggja.

Út af því, sem hv. þm. Seyðf. veik að, að mörg félög væru nú búin að fá álitlegar upphæðir í varasjóði og nýbyggingarsjóði, þá vil ég viðurkenna, að það mun, sem betur fer, vera rétt. En þegar meira er séð um afkomu ársins 1942 en enn er orðið, þá er vitanlega opin leið til þess að breyta l. á næsta þingi og setja, ef ástæða virðist. til, einhver ný ákvæði um varasjóðshlunnindi slíkra félaga.

Hv. 6. landsk. (EmJ) hefur ekki numið alveg rétt allt, sem ég sagði um möguleika Hafmarfjarðarbæjar um að ná til sín stríðsgróðaskatti eftir þeirri brtt. hans, sem fyrir liggur. Ég reiknaði út, að ef hans brtt. væri samþ., gæti bærinn fengið um það bil 11/4 millj. kr. í sinn hlut af stríðsgróðaskattinum. Og ef, samkv. orðum hv. 6. landsk. sjálfs, væri hægt fyrir bæinn að leggja á þessi fyrirtæki hálfa millj. kr. í útsvör, þá mundi koma upphæð sú, sem bærinn þyrfti að fá samkv. fjárhagsáætlun. Nú segir hv. 6. landsk. þm. (EmJ), að togarar í Hafnarfirði séu 7, en ekki 9. Þetta er ekki rétt hjá honum. Togararnir munu vera 9 í Hafnarfirði. En hann á sennilega við það, að tveir af þessum togurum eru í eign bæjarins. Og það mun rétt vera, að tekjuskattur og stríðsgróðaskattur nái ekki til bæjarútgerðarinnar. En ef bærinn græðir á þessum skipum sínum, samkv. því, sem áætlað hefur verið, alls 180000 kr. á einu ári, þá virðist mér ekki goðgá að gera ráð fyrir því, að bærinn tæki af þessu 1/5 eða 1/4 part í bæjarsjóð. Hefði hann þó álitlega upphæð til þess að leggja í nýbyggingarsjóð fyrir þessi framleiðslutæki. Og ekki þyrfti bærinn að taka meira en 1/5 til 1/4 af gróða þessara skipa, samkv. þessari áætlun, til þess að vega þetta upp, og getur þá útreikningur minn staðizt.