31.03.1942
Neðri deild: 28. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)

69. mál, tekjuskattur og eignarskattur

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Meiri hl. hv. fjhn. hafði tekið að sér flutning þessa frv. að beiðni ríkisstj. Eftir venjunni átti því n. að hafa framsögu í málinu, en vegna forfalla í n. fylgi ég því úr hlaði með nokkrum orðum.

Eins og segir í grg., er þetta frv. flutt að tilhlutan ríkisstj. og samið af þar til kvöddum mönnum úr stjórnarflokkunum, og þó að þeir flokkar, sem að frv. standa, hefðu sjálfsagt, hvor um sig, kosið að hafa það nokkuð á annan veg en hægt er að koma við, þegar samvinna er um málið. Flm. áskilja sér rétt til að flytja till. til breyt. á einstökum atriðum frv., eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.

Eins og í grg. segir, eru aðalbreytingarnar frá gildandi lögum tvær:

1. Lagt er til, að fellt verði. niður ákvæði gildandi l. um heimild til þess að draga frá tekjum einstaklinga og félaga greiddan tekjuskatt og útsvör, og skattstiginn lækkaður hlutfallslega við það. Fer ég ekki nánar út í það, en vísa að öðru leyti til grg.

2. Um varasjóðshlunnindi var svo áður fyrir mælt, að félög, er leggja í varasjóði, fengju víssan hluta þess tillags skattfrjálsan, t.d. útgerðarfélög 50%. Þessu er nú breytt þannig, að nú er sá hluti teknanna, sem lagður er í varasjóð, skattfrjáls. Hins vegar er sá skattfrjálsi hluti teknanna lækkaður úr 50% í 331/3 % og úr 40% í 20%.

Þetta eru þær tvær aðalbreytingar, sem frv. gerir ráð fyrir frá gildandi lögum.

Viðvíkjandi eignarskattinum er nú gert ráð fyrir, að eignarskattur verði eigi reiknaður öðrum en þeim, er eiga yfir 10 þús. króna skuldlausa eign í stað 5 þús. áður.

Ég orðlengi svo ekki frekar um þetta á þessu stigi málsins, enda ekki undir það búinn.

Legg ég svo til, að málinu verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni.