31.03.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (1394)
39. mál, Siglufjarðarvegur
*Einar Árnason:
Þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, er þess efnis að skora á stj. að gera nú á næsta sumri átak nokkurt til þess að fullgera að nokkru leyti veg frá Siglufirði að Ketilási, til þess að Siglufjörður geti komizt í akvegasamband við önnur héruð. Ég tel ekki þörf að fara mörgum orðum um þessa till. Vegagerð yfir Siglufjarðarskarð er svo kunn hér á þingi, og þingið hefur raunar viðurkennt nauðsynina á að gera þennan veg til þess að koma Siglufirði í vegasamband við aðra landshluta, að um það þarf ekki að ræða. Það eru nú allmörg ár, síðan byrjað var á þessum vegi, og er þegar komið nokkurt fé í hann frá ríkissjóði og frá einstökum mönnum og stofnunum og jafnvel frá Siglufjarðarbæ. Siglufjarðarbúum er mjög mikil nauðsyn að fá þennan veg og hafa mjög mikinn áhuga fyrir, að hann verði fullgerður, og þess vegna hafa þeir lagt fram talsvert fé til þess að flýta fyrir lagningu hans, en þó að búið sé að vinna að þessum vegi í nokkuð mörg ár, er hann ekki kominn enn þá nema upp undir háskarðið Siglufjarðarmegin, og er þá allmikið eftir til þess að ná sambandi við bílfæran veg í Skagafjarðarsýslu. Þess vegna er það, að allir þeir fjármunir, sem lagðir hafa verið í veginn fram að þessu, koma í raun og veru enn að engum notum. Og ef ekki verður lagt meira í veginn en gert hefur verið undanfarin ár, má gera ráð fyrir, að þessi vegagerð standi í mörg ár enn þá og Siglufjarðarbær verði jafnvegalaus til annarra héraða og verið hefur frá alda öðli.
Á vetrarþinginu í fyrra bárum við, sem að þessari till. stöndum, fram tili. um þennan veg, þar sem skorað var á stj. að fullgera þennan veg alla leið á næstkomandi sumri. Þessi till. hygg ég, að hafi haft talsvert fylgi í þinginu, en þó urðu það örlög hennar, að hún var aldrei tekin til umr., jafnvel þótt hún lægi fyrir í fulla 2 mánuði. Hún var nokkrum sinnum á dagskrá, en ætið tekin af dagskrá, án þess að hún væri rædd, og með þessu tókst að koma þessari till. fyrir kattarnef.
Þegar séð var, hvernig fór með þessa till., var það, að ýmsir menn á Siglufirði hófust handa á síðasta sumri. Það munu hafa verið bílstjórar, verzlunarmenn og ýmsir íþróttamenn þar, sem tóku sig til um að reyna að hrinda þessu máli eitthvað áleiðis með því að leggja fram gjafavinnu í veginn. Þessir menn höfðu að vísu engan tíma nema hvíldarstundir sínar, en þær notuðu þeir. Auk þess tókst þeim að fá ofurlítinn styrk frá bæjarfélaginu og síldarútvegsnefnd og verksmiðjum ríkisins til þess að greiða vönum verkstjóra kaup til þess að starfa við veginn. Þeim tókst með þessu móti að ryðja upp að háskarðinu og voru auk þess byrjaðir vestan skarðsins, en vitanlega var þeim alveg ofvaxið að vinna við háskarðið sjálft, því að til þess þarf talsvert mikið fé og auk þess vinnuvélar, því að þar þarf að sprengja mikið niður, en álitið er, að takast muni með litlum kostnaði að ryðja veginn frá háskarðinu og niður að Hraunum í Fljótum, svo að þar verði bílfær vegur. Hins vegar er þá eftir spottinn frá Hraunum að Ketilási, til þess að komist verði í fullkomið vegasamband. Þessi till. gengur að því leyti skemmra en till. á vetrarþinginu í fyrra, að hún gerir ekki ráð fyrir, að vegurinn sé lagður nú á partinum frá háskarðinu og vestur að Hraunum í Fljótum, heldur verði hann ruddur.
Ástæðan til þess, að till. gengur ekki lengra, er sú, að við flm. töldum, að það kynni að vera nokkrum erfiðleikum bundið að fá veginn fullgerðan.
Ég vænti þess, að Alþingi sýni málinu fullan skilning, svo að á næsta sumri verði það átak gert, að bílfært verði frá Siglufirði til annarra landshluta.
Ég vil mælast til þess, að till. verði vísað til fjvn., og skýt því til forseta, hvort ekki sé rétt, að umr. sé frestað, unz hún hefur athugað málið.