31.03.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í D-deild Alþingistíðinda. (1395)

39. mál, Siglufjarðarvegur

*Gísli Guðmundsson:

Ég hef leyft mér að bera fram vatill. á þskj. 71 við þessa þáltill. og fer þar fram á, að fé sé veitt til að ljúka vegi yfir Öxarfjarðarheiði. Það eru nú víst 5 eða 6 ár, síðan ég hreyfði því hér, að veg þennan yrði að ryðja hið fyrsta. En verkið gat ekki byrjað fyrr en í fyrra sumar. Þá hafði Alþingi veitt til þessa nokkra upphæð, framhald þess kemur í ár, en nægir alls ekki til að ljúka verkinu, nema aukið sé við. Mjög mikill áhugi hefur verið fyrir þessu í sveitunum austan heiðarinnar. Þar er talsvert yfir þúsund manns, sem kæmist í vegarsamband við aðra landshluta með þessari vegagerð, fleiri eftir en áður að Brekknaheiðarvegur kom, sem opnar Langanesströndina. Það eru góðar og frjósamar sveitir og hafa orðið þar miklar framfarir síðari árin, og vegurinn yrði þeim þýðingarmikil umbót. Kostnaður yrði varla meiri en 5–10% þess kostnaðar, sem af aðaltill. leiðir, og munar því ekki miklu, ef þingið vill á annað borð sýna þann stórhug að verja fé til þessa í sumar.

Ég get fullyrt, að í sveitum þar mundi fást vinnukraftur til að ljúka verkinu. T.d. komu til mín nýlega tveir ungir menn þaðan, sem hafa verið í Bretavinnu, og sögðust undir eins fara úr henni og leggja hönd á þetta verk, ef því fengist aflokið í sumar.