09.05.1942
Efri deild: 53. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (1450)

69. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti! Við umr. um frv. um stríðsgróðaskatt lét hæstv. fjmrh. þá ósk í ljós, að engar breyt. yrðu gerðar á þessum tveim frv., því að hann taldi mikla þörf á að hraða málinu. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að full þörf er á, að skattan. geti farið að vinna, en ríkisstj. getur sjálfri sér um kennt, hvað frv. þessi eru seint á ferðinni, því að það var meira en mánuður liðinn af þingtímanum, þegar þau komu fram. Hvernig á því stendur, get ég ekki um sagt, en það, var boðað um leið og þing var kvatt saman, að von væri á þessum skattafrv. Þær orsakir kunna að hafa ráðið, að bæjarstjórnarkosningar í Rvík fóru fram í marz. og að ekki hafi verið talið heppilegt, að frv. kæmu fram fyrr en á eftir þeim.

Í öðru lagi vil ég segja það, að það er leiðinlegt að heyra það hvað eftir annað hér í Ed., að ekki megi koma fram með nauðsynlegar. brtt. Þetta var svo í fyrra líka, þegar stórmál eins og ráðstafanir gegn dýrtiðinni voru á döfinni. Ég sé ekki annað en það sé verið að gera tilraun til að hafa áhrif á vilja þm., þegar slíkum aðferðum er beitt gegn þeim.

Brtt. mín á þskj. 351 er við 14. gr. frv., og er um það, að í staðinn fyrir 50% í nýbyggingarsjóð komi 70%. Mér skilst á ræðum hv. þm., að þeir séu sammála um, að stríðsgróðaskatturinn eigi að vera að sem mestu leyti þjóðareign. Sumir menn eru þeirrar skoðunar, að þessi hluti fjárins eigi að vera einstakra manna eign, en ég er alls ekki sammála þeirri skoðun. Ef svo væri farið að, þá mundu þessir menn geta lagt þetta fé í eignir, sem væru algerlega óviðkomandi atvinnurekstri þeirra. En með því að lækka þetta úr 50% upp í 70%, þá er séð fyrir því, að þessi hluti fjárins verði til staðar að stríðinu loknu til þess að endurnýja fyrirtæki.