09.05.1942
Efri deild: 53. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)

106. mál, byggingarsamvinnufélög

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Mál þetta er komið frá hv. Nd. og er flutt af allshn. þeirrar d. Efni þess var upphaflega að fella niður 13. gr. l., en undir meðferð málsins hefur d. gert nokkrar breyt. á 10. gr., sem sjá má á þskj. 309. Efni þessara breyt. er í aðalatriðum það, að í stað þess, að þegar um sölu íbúðar var að ræða, þá skyldi farið eftir kostnaðarverði, þá er því nú breytt á þann veg, að það skuli fara fram mat á íbúðinni, þegar um sölu er að ræða. Þetta er aðalefnið í brtt. við 1. málsgr., en efnið í þessu frv. er að fella 13. gr. 1. niður. Í stuttri grg. er gerð grein fyrir því, hvað fyrir vakir með þessu. Allshn. hefur fallizt á þá breyt. l., að 13. gr. frv. falli niður, og leggur til, að brtt. verði samþ., eins og þær nú liggja fyrir.