10.03.1942
Neðri deild: 16. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

31. mál, til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar

*Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Ég hef ásamt hv. samþm. mínum leyft mér að flytja þetta mál sem tilraun til þess að finna einhverja leið til að leiða rafmagn til kauptúnanna hér austaufjalls. Menn kannast nú við þetta mál, þar sem því hefur fyrir nokkru síðan verið hreyft á þingi, en jafnan strandað á þeim vandkvæðum, að ekki hefur fengizt gjaldeyrir til að kaupa efni erlendis. Það var um skeið þröngt um gjaldeyri, og þótti hvert strá í þeim efnum gera skugga. Var því jafnan til þess vitnað, að ekki væri gjaldeyrir fyrir hendi að gera slík kaup. Þar sem orðið er drjúgum rýmra um gjaldeyri nú, vil ég vænta þess, að ekki þurfi að bera þeirri sömu ástæðu enn við. Reyndar verð ég nú að segja það, að á þeirri tíð, sem við vorum að hreyfa þessu máli og reyna að þoka því til framkvæmda, var ráðizt í stórfellt mannvirki í landinu, sem kostuðu ekki tugi eða fá hundruð þúsunda af gjaldeyri, heldur margar milljónir. Þessi fyrirtæki voru að vísu gerð í þágu allmikils mannfjölda, en kostuðu áreiðanlega hlutfallslega eins mikinn gjaldeyri. Þau voru framkvæmd eigi að síður, og ekki dettur mér í hug að sakast um það. Við höfum áður, þm. Árn., greitt atkv. með þeim málum og viljað verða við óskum fólksins í héruðum, sem þessara framkvæmda hafa notið. En við ætlumst þá einnig til, að það séu einhver takmörk fyrir því, hverjir séu látnir sitja á hakanum, sem annars hafa allgóð skilyrði til að verða þessara hlunninda aðnjótandi.

Frá því að Sogsstöðin fyrst var reist, hefur svo verið til ætlazt, að kauptúnin austanfjalls yrðu aðnjótandi rafmagns frá þeirri stöð. Það var beint tekið fram, þegar ákvarðað var að byggja stöð við Sogið fyrir Reykjavíkurbæ, að Árnessýsla ætti að verða þessarar orku aðnjótandi, svo fljótt sem verða mætti. Og ég hef ekki yfir neinu að kvarta af hálfu Reykjavíkurbæjar í þessum efnum, öðru nær. Ég býst við, að aldrei hefði staðið á því af hálfu Reykjavíkurbæjar að láta í té raforku til þessara staða. Bæði hefði bærinn viljað verða við óskum úr þeim héruðum, þar sem aflið er tekið, og einnig er hitt, að það er tiltölulega lítið rafmagn, sem þarf til að fullnægja þessum stöðum, svo að bæinn munaði ekki ýkjamikið um það. Það er að vísu svo komið, að það skortir rafmagn til þeirra nota, sem það er haft hér í Reykjavík. En það mun þó ekki skipta svo miklu máli í þessu sambandi, að það sé umtals vert. Því að það eru ekki margar vélar, sem þyrfti að draga úr notkun hér, til þess að rafmagnsþörf austanfjalls yrði fullnægt. Kaupstaðirnir austanfjalls eru einkum illa settir, hvað raforku snertir. Eins og getið er um í grg., hafa þeir ekki annað við að styðjast en mótorrafmagn. Þessi tæki eru gömul og ófullkomin, og má búast við að bili, þegar minnst varir, en viðgerð og endurnýjun erfið og dýr. Það hlýtur því að draga að því, að raforku verði veitt til þessara staða frá Sogsstöðinni, eins og um var talað í fyrstu. Skilyrði fyrir ýmiss konar starfsemi eru þarna góð, t.d. iðnaðar, en af slíku getur ekkert orðið fyrr en úr rafmagnsþörfinni er bætt. Á þessum stöðum, eins og öðrum, þar sem möguleikar eru slikir fyrir hendi, þráir fólkið mjög að geta fengið þetta afl í sína þjónustu. Og enginn hygg ég að efist um, hve þýðingarmikið það er fyrir öll störf á heimilum, sem snerta aðbúð og hollustu, að fá raforku. Það er nokkrum sinnum að því vikið, að fólkið í sveitum landsins eigi þar að vera þjóðinni til jafnvægis og öryggis og sýna þegnskap sinn með því að vinna þau störf, sem þar þurfa að fara fram. Ég get tekið undir þær óskir. En því aðeins getur maður gert kröfu til, að fólkið haldist við úti um sveitir landsins, að sinnt sé nauðsyn þess og ekki sé gert mjög upp á milli landsins barna um aðbúð og hlunnindi. Skorti mjög stórkostlega á í þessu efni, þá er algerlega tómt mál að tala um það, að menn skuli reyna að haldast við og starfa á hinum eða þessum stöðum, ef þeir geta búið annars staðar við allt önnur og betri lífsskilyrði. Það þýða því engar prédikanir. Fólkið leitar til þeirra staða; þar sem það heldur, að því vegni bezt. Og er þá ekki nema eðlilegt, að menn kannske liti ekki eins langt og þyrfti til þess að meta að verðleikum afkomumöguleikana í heild, eins og þeir verða, þegar til lengdar lætur.

Við flm. leyfum okkur að koma með uppástungu um fjármuni til að leysa þetta verkefni. Okkur hefur litizt bezt að fá málinu framgengt með því móti, ef áhugamenn í þessu efni vildu taka höndum saman og leggja fram fjármuni. Teljum við langmestar líkur til, að málið verði þannig leyst, og þyrfti máske ekki nema að litlu leyti að leita til hins opinbera um fjárframlög í þessu skyni. Hins vegar er auðvitað og sjálfsagt, að af hálfu stjórnarvaldanna sé greidd gata þessa máls að því leyti, sem þarf til þeirra kasta að koma um útvegun efnis erlendis frá, og þar með gjaldeyri fyrir efnið. Nú hefur slíkt efni allmjög hækkað frá því, sem áður var. Fyrir stríð mun erlent efni til þessara framkvæmda ekki hafa kostað nema 160–170 þús. kr. En þó að það verði miklu meira nú, ber líka hins að gæta, að við framkvæmd þessa verks sparast innkaup á erlendum, vörum bæði til eldsneytis og lýsingar, sem líka hafa mjög hækkað, og dregur slíkt nokkuð úr hinni raunverulegu eyðslu, sem liggur í hækkuðu verði á efni til þessara framkvæmda.

Ég vil svo vænta, að hv. Alþ. og þá fyrst og fremst þessi hv. d. greiði götu þessa máls og flýti fyrir afgreiðslu þess.

Hvað viðvíkur öðru máli, sem við þm. Árn. fluttum og var til umr. í gær og fór í n., þá er um nokkuð annað efni að ræða, sem hefur eigi síður bæði fyrir þessi héruð og önnur síðar meir mikla þýðingu, að gangi fram. En ég vona, að menn sjái alveg jafnt nauðsyn þess, að þetta mál fái afgreiðslu. Því að þetta frv. lýtur aðeins að framkvæmdum á þessum stað og helzt nú þegar.

Ég legg svo til, að máli þessu verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og til iðnn.