30.03.1942
Efri deild: 24. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1591)

55. mál, lækningaleyfi

*Bjarni Snæbjörnsson:

Ég vildi aðeins bera fram tilmæli um það, að málið verði nú tekið af dagskrá, því að formann Læknafélags Íslands langar til að tala við n., og mun gera ráðstafanir til þess að fá viðtal við n. í dag. Og mér hefði þótt viðkunnanlegra, að það viðtal hefði getað átt sér stað áður en 2. umr. fer fram, og þyrfti það ekki að tefja málið. (PZ: Þetta er bara 2. umr.) Það er ekki betra að taka það hvað eftir annað af dagskrá við 3. umr.