07.04.1942
Efri deild: 27. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)
55. mál, lækningaleyfi
*Magnús Jónsson:
Ég skal ekki lengja mikið umr. um þetta mál. Ég lýsti því við 2. umr. málsins, að ég hefði heldur ímugust á þessu litla frv. Og mér finnst eiginlega hálfilla til fundið, að það skyldi vera látið fylgja á eftir hinu frv. á þskj. 80, sem vissulega beinist þó að því að bæta þarna úr þörf, og hefði átt að láta nægja með það, en ekki koma með þegnskyldufrv. um leið, því að ég gæti hugsað mér, að það kannske spillti fyrir framgangi þessara mála yfirleitt.
Hv. frsm. allshn. hefur nú sýnt fram á, að læknar í þessum afskekktu héruðum hafi í raun og veru alls ekki slæm laun, eftir því sem gengur og gerist hér á landi. Ég skal ekki véfengja hans útreikning. Ég hélt ekki, að 25% uppbótin gamla væri reiknuð af svo háum launum, en ég tek þetta trúanlegt. Einu sinni mun hún hafa verið reiknuð af 2500 kr. Við skulum segja, að útreikningur hv. frsm. sé réttur á þessu, og þá eru um 10000 kr. laun lækna á þessum stöðum sennilega lífvænleg. Og þá eru það sennilega aðrar ástæður, sem gera það að verkum, að læknar fást ekki í þessi héruð, heldur en beinlinis að þeir komist ekki af fjárhagslega. Ég get ekki sagt, hvers vegna þetta er, en þetta er staðreynd. Og ég get ekki búizt við því, að það' sé hægt að reka læknana út í héruðin, sem eru læknislaus. Þeir hljóta að vita, hvaða laun þeir muni hafa, og héruðin ganga illa út, og það af einhverjum orsökum. Og læknar verða sjálfsagt ekki sannfærðir í þessu efni með þingræðum. Ég get vel trúað, að þetta sé óskynsamlegt af þeim að fara ekki í þessi héruð. En mér er illa við að lögþvinga menn til þess að gera það, sem þeir vilja ekki gera. Og það er lögþvingun að meina manni að vera þar, sem hann vill vera. (IngP: Það er aðeins í 6 mánuði). Ef það ætti aðeins að vera í 8 mánuði, sem sami læknir væri í slíkum héruðum. sem um er að ræða, þá væri lítið gagn að og mikil týning fyrir sjúklingana, sem við það yrðu að búa, miðað við lengri dvöl lækna á sama stað. Ég er yfirleitt á móti þessari lögþvingun, jafnvel þótt hægt sé að sanna, að þessir menn hafi viðunanleg lífskjör í þessum útkjálkahéruðum. Ég vil ekki slíka þvingun, nema miklu meiri þjóðfélagsnauðsyn krefji heldur en hér er um að ræða. Því að það er óreynt, hvort. ekki megi fá lækna í þessi héruð þannig, að eitthvað komi þar á móti. Vill ríkið vinna það til að, greiða það fé, sem til þess þarf að fá menn í þessar stöður? Það er leiðin, sem ríkið og einstaklingar yfirleitt verða að fara til þess að fá menn í þær stöður, sem menn vilja síður taka að sér en aðrar, að bæta þeim upp í launagreiðslum til þess að fá menn í störfin. Þetta er það, sem gerir mismun á launakjörum nauðsynlegar, vegna þess að það er alls ekki annað ráð, sem þjóðfélagið hefur að grípa til, en að búa svarað þeim, sem eiga að taka að sér störfin, sem menn vilja síður en önnur taka að sér, að menn taki þau. Ég get trúað, að það ráði nokkru um það t.d., hvort læknar vilji heldur vera í Reykjavík eða Reykjarfjarðarhéraði, að það er náttúrlega mikill munur á því að ganga hér um göturnar eða ferðast í erfiðu héraði eins og Reykjarfjarðarhéraði. Ég býst við, að þeir, sem hér eru inni, ef þeir ættu að velja á milli, að þeir tækju þá stöðuna, sem er hægari. Og í þessum efnum geta komið fleiri ástæður til greina. Það er ekki allt miðað við tóma peninga hjá læknunum. Það getur verið, að þeir vilji vera þar, sem mörg sjúkdómstilfelli koma fyrir, og þar, sem þeir því ekki forpokast, ef svo mætti segja, í sinni grein. Það getur verið samfara miklum ferðalögum og því, að lítið sé leitað læknis, að þeir fái lítil verkefni. Og ég, hef heyrt lækna kvarta undan því, að í afskekktum héruðum fari þeim ákaflega mikið aftur. Og það ræður nokkru líka, í hvers konar félagsskap menn eru. Mönnum þykir skemmtilegra að vera þar, sem þeir geta hitt starfsbræður sína, og þar, sem þeir geta haft góðan bókakost. Og fleira kemur til greina. Þetta ætti þjóðfélagið að jafna upp með því að láta þá sækjast eftir einhverju góðu í afskekktari héruðunum, og þá sérstaklega launum. Ég sé ekki annað ráð í lýðfrjálsu landi.
Það hafa verið einhver umtöl um það að bæta kjör þessara afskekktustu lækna að einhverju leyti. En mér er sagt, að ekki sé búið að ráðstafa þessu enn á neinn hátt. Ég hefði viljað, að það hefði verið þaulprófað að reyna aðrar leiðir í þessu máli, áður en farið væri inn á þessa lögþvingunarleið. Og þó að þetta sé ekki nema heimild, þá er hæstv. Alþ. þó með henni, ef samþ. verður, búið að leggja það í hendur ríkisstj., hvort ríkisstj. notar þá heimild eða ekki. Og verði svo gert, sýnist mér, að það gæti orðið mikið misrétti gert milli manna. Nú væri t.d. ekkert afskekkt hérað læknislaust, og þá yrði að veita nýútskrifuðum læknum læknisleyfi, sem annars ættu að fara eftir þessum ákvæðum í héruðin. Svo losnar eitthvert hérað, sem ekki er eftirsótt, og þá er einhver læknir skyldaður til að þjóna þar. Þessi þvingunarákvæði kæmu því niður á sumum, en öðrum ekki. Þá gætu skæðar tungur kannske sagt, að það væri framkvæmt eftir því, hvernig stæði í bólið þessa eða hins valdarnannsins, að skikka menn til þess að fara í útkjálkahéruðin. Ég veit ekki, hvernig þetta yrði í framkvæmdinni. Ég get hugsað mér, að þegar miðaldra maður, eins og menn eru, þegar þeir eru búnir að ljúka sérfræðinámi, er búinn t.d. að sérhæfa sig í augnlækningum og hann yrði þá að vera 6 mánuði þjónandi læknir í Reykjarfjarðarhéraði t.d., að hann sæi kannske ekki ástæðu til að ráða sig af dögum fyrir það. En ákaflega væri ósanngjarnt að skylda hann til þess. Ég get búizt við, að ef þessi ákvæði verða samþ. um þessa skyldukvöð lækna, þá sjái kandidatar sér það ráð vænst að bjóða sig fram til þessara starfa að loknu námi, og ættu þeir þá að mega ljúka þessari skyldukvöð af þá, ef til hennar kæmi fyrir þá, hvern fyrir sig, en að þeir þyrftu ekki að fara út í langt sérnám þannig að eiga þá þetta sverð alltaf yfir höfði sér.
Mér er ekki ljóst, hvers vegna hv. allshn. hefur borið fram þetta frv., eftir að hún bar hitt frv. fram. Ég sé ekki, að samband sé svo mikið á milli þessara frv. tveggja. Hitt frv. fer fram á mjög skynsamlega hluti, þó að vel geti verið, að eitthvað þurfi að breyta því. En þetta frv. er aðskotadýr, sem ekkert kemur því máli við. Þetta frv. getur staðizt alveg eitt sér, og hitt frv. getur líka staðizt alveg eitt sér.