11.05.1942
Neðri deild: 55. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

55. mál, lækningaleyfi

*Einar Olgeirsson:

Ég minntist nokkuð á þetta mál við 1. umr. Mér virðist satt að segja, að þetta mál beri nokkuð mikinn keim af því, sem oft hefur verið uppi á teningnum nú upp á síðkastið, að menn vilji heldur fara þá leið að þvinga menn heldur en að ráða fram úr vandamálunum á þann hátt að semja við þjóðfélagsþegnana og gera þannig við þá, að þeir vilji taka að sér það, sem þjóðfélagið æskir af þeim. Ég vakti athygli á því, áður en málið fór til n., að með þessari lagasetningu væri verið að bæta þvingun ofan á þvingun, sem fyrir væri. Læknanemar, sem þarna eiga hlut að máli, eru einir allra stúdenta, sem útskrifast frá háskólanum, skyldaðir til að gegna um eins árs bil ákveðnum störfum, eftir að þeir útskrifast, og það eru þess vegna gerðar mjög miklar kröfur til þeirra af hálfu þjóðfélagsins til þess að tryggja, að þeir verði sem færastir í sinni grein. Þess vegna er ekki rétt að fara að bæta við þetta eina ár allt að 6 mánuðum. Og það er sérstaklega óréttmætt með tilliti til þess, að þeir verða að sæta þeim launum, sem eru það lág, að menn mundu ekki ráða sig fyrir þau, ef þeir væru frjálsir og sjálfráðir um það.

Ég vil enn fremur vekja eftirtekt á því, að það er mjög óheppilegt fyrir sveitirnar, að farið sé svona að. Með því að reyna að þvinga nýútskrifaða lækna til að starfa allt að 6 mánuði í læknishéruðum úti um land fyrir laun, sem þeir mundu ekki líta við, ef þeir væru sjálfráðir, þá er verið að koma því skipulagi á, að í dreifbýlinu starfi þeir læknar, sem hafa minnsta reynslu, sem eru nýútskrifaðir og hafa því minnsta möguleika til að gegna þeim störfum, sem þeim er ætlað, því að auðvitað fara þeir burt, strax og þessir 6 mánuðir eru liðnir.

Ég álít, að það hefði fyrst og fremst átt að vera verkefni n., sem fékk svona mál, að reyna að finna aðferð til að tryggja dreifbýlinu betri læknakost, en ekki að mæla með svona þvingunarl., sem eru í senn óheppileg fyrir læknanemana og fyrir þá, sem eiga að njóta aðstoðar þeirra úti í sveitunum. Ég sé, að n. hefur í raun og veru ekkert í þessu gert. Þegar annað mál, skylt þessu (50. mál), var hér til umr., var látið líklega með, að þetta mál mundi ekki koma aftur fram fyrir þessa d. En þegar það frv. er orðið að l. og ekki hægt að breyta því frekar, þá kemur þetta frv. aftur fram, og virðist eiga að fara í skyndi gegnum deildina.

Ég sé, að hér eru komnar fram brtt. frá minni hluta allshn., sem miða að því að stytta þennan þvingunarvinnutíma og hækka launin nokkuð. Þessar brtt. miða í rétta átt, en það horfir dauflega með þær, ef hv. flm. koma ekki til að mæla fyrir þeim. Er því ekki gott að segja, hverjar undirtektir þær fá, enda er d. þunnskipuð.

Mér sýnist, að allshnm. í heild hafi lítið gert til að finna lausn í þessu máli. Við 1. umr. málsins kom ég inn á galla læknaskipunarinnar, og menn virtust sammála um, að breyta þyrfti til, en frá n. hefur ekkert komið nema þessar brtt. frá minni hl. Mér finnst þetta vera slæm afgreiðsla, og ég álít rétt að fella frv. Það er búið að stíga nógu mörg spor til að koma á meiri og meiri þvingun í staðinn fyrir að reyna að koma á samkomulagi við þann hluta fólksins, sem um er að ræða í hvert sinn. Það er ekki heppilegt að halda áfram á þeirri braut, og ég held, að rétt sé að stinga fótum við og láta þetta frv. ekki ganga fram.