11.05.1942
Neðri deild: 55. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (1627)
55. mál, lækningaleyfi
*Einar Olgeirsson:
Ég skal ganga inn á, að þessi leið er oft þægilegust fyrir löggjafann. Það er brotaminnst að leysa vandann með því að þvinga menn til þess, sem gera skal. Hitt er erfiðari leið að leysa vandamálin í samræmi við almennt frelsi manna. Það kostar kannske meiri heilabrot og baráttu, en það er eina leiðin, sem er í samræmi við menninguna. En það er spor aftur á bak að setja l. eins og þessi.
Hv. þm. N.- Þ. segir, að það sé ekki einhlít leið að hækka launin: Hann mun þó ganga inn á, að það sé þýðingarmikið atriði. Ég sé því ekki, hvað ætti að vera því til fyrirstöðu að reyna, a.m.k. eins mikið og hægt er, að fá menn í þessi störf með hærri launagreiðslum. Ég get því ekki séð, hvað hv. frsm. hefur við það að athuga að samþ. þá till., sem liggur fyrir, um lágmarkslaun við þessi störf.
Hvað snertir það, hvernig hægt muni vera að fá menn til að gegna þessum störfum, þegar launin hafa verið hækkuð og þyrfti að yfirvinna það, að menn vilja ekki sitja í útkjálkahéruðum, af því að það sé leiðinlegt og erfitt, og vilji heldur vera í Reykjavík eða öðrum stöðum, þar sem þéttbýli er, þá álít ég, að einnig sé hægt að yfirvinna það, og var það nokkuð rætt í sambandi við 50. málið. Það mætti koma því þannig fyrir, að læknar, sem tækju að sér útkjálkahéruðin, hefðu forréttindi, þegar ætti að setja lækna í þau héruðin, sem eftirsóttust eru. Það er réttlátt, að þeir, sem hafa mest lagt á sig fyrir þjóðfélagið, gangi fyrir seinna meir, þegar veitt eru þau læknisembætti, sem eftirsóttust eru.
Ég minntist á það við I. umr., hvort ekki þyrfti að grípa til róttækari ráðstafana en þeirra, sem nú eru á ferðinni, hvort ekki vær í rétt að launa lækna eingöngu af því opinbera, en láta alveg falla niður greiðslur til þeirra frá einstaklingum. Það eru slík atriði, sem þarf að athuga, hvernig eigi að ráða fram úr. Þetta er því ekki eingöngu óheppileg, leið, heldur kák, sem gerir skaða. Þetta er að setja bót á gamalt fat og láta það svo drasla í staðinn fyrir að taka málið til alvarlegrar athugunar, — taka það róttækt fyrir. En það koma engar till. fram um slíkt. N., sem hafði málið til athugunar, gerði ekkert í slíku. Ég veit ekki, hvort hægt er að búast við, að slíkar till. komi beint frá læknum. Ég býst við, að þaðan sé varla að vænta róttækra ráðstafana, og hygg ég því, að þær verði að koma frá Alþ.