12.05.1942
Neðri deild: 56. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í B-deild Alþingistíðinda. (1633)

55. mál, lækningaleyfi

*Bergur Jónsson:

Ég hef skrifað með fyrirvara undir nál. í þessu máli. Fyrirvarinn er viðvíkjandi því, að ég er sömu skoðunar og hv. 7. landsk., að þar sem læknisnám er langt og erfitt, gæti verið nokkuð hart að gengið að bæta við þessari kvöð, sem farið er fram á. Hins vegar treysti ég því, að þetta verði ekki misnótað, heldur aðeins, þegar brýn þörf er til. Og þess vegna mun ég hætta á það að fylgja þessu frv. Enda lýsti hv. 2. þm. Rang. yfir, að heimildin mundi ekki verða notuð í öðrum tilfellum.

Tveir hv. þm. hafa borið fram brtt. við þetta frv. Sú fyrri, að stytta tímann í 4 mánuði, finnst mér ekki stórvægileg. En ef á annað borð á að nota þessa heimild, sýnist mjög meiningarlítið að hafa tímann skemmri en 6 mánuði. Um hitt atriðið er þess að gæta, að með öllum þessum frv., þskj. 59 og 80 og þessu, er verið að reyna að bæta úr þeirri brýnu þörf, sem er fyrir hendi um að fá sæmilegan lækniskost í héruðin úti um landið. Og allir, sem um þetta mál hafa látið í ljós skoðun sína, eru sammála um, að úr þessari þörf verði að bæta. En þessi brtt. er um það að tryggja á sérstakan hátt launakjör þeirra fjögurra aðstoðarlækna, sem gert er ráð fyrir í frv. á þskj. 80, þannig að auk þeirra 400 kr., sem nú eru komnar inn í það frv., að greiða skuli til þessara aðstoðarlækna, skuli einnig greiða 100 kr. annars staðar að, hvort tveggja auk dýr tíðaruppbótar. Ég álít, að þessi breyt. eigi alls ekki við í þessu frv. Sést það bezt á því, að ef svo bæri undir, að til þessara aðstoðarlæknisstarfa, sem gert er ráð fyrir í hinu frv. að stofna til, fengjust reyndir læknar, þá væri ákaflega einkennilegt, að í l. um þá væri eingöngu gert ráð fyrir 400 kr. greiðslu úr ríkissjóði, en hærri greiðslu til hinna ungu manna og óreyndu. Þessi till. átti í raun og veru að koma fram við hitt frv., því að þetta frv. er eingöngu borið fram til þess að reyna að tryggja það, ef í nauðir rekur, að hægt sé að fá menn í þau störf, sem þar um ræðir. Um þessar 100 kr. annars staðar frá er ég í dálitlum vafa, hvort hér er verið að bæta hag þeirra manna, sem hlut eiga að máli. Ég hygg það engum vafa undirorpið, enda upplýst af þeim, sem betur þekkja, að margir héraðslæknar á landinu, og í raun og veru allir, sem mundu þurfa hjálpar þessara aðstoðarlækna, mundu leggja af mörkum meira og minna til þess, og geri ég ráð fyrir, að það yrði meira en 100 kr. pIús dýrtíðaruppbót. Ég er þess vegna í vafa um það, að bæta mundi hag þeirra að setja inn í hvaða frv., sem væri, ákvæði um þetta. Ég efast ekki um góðan tilgang hjá flm. brtt. En ég mun fyrir mitt leyti greiða atkv. á móti þessu. Hins vegar harma ég, að menn skyldu ekki hreyfa þessu í sambandi við fyrra frv., því að þar átti till. heima.