12.05.1942
Neðri deild: 56. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

55. mál, lækningaleyfi

*Garðar Þorsteinsson:

Mér þykja mjög einkennileg síðustu orð hv. þm. Barð. Ef þetta er nauðsynlegt til þess að tryggja aðstöðu þessara manna betur, þá getur hv. þm. alveg eins verið með brtt., þó að hún komi við þetta mál. Ég segi, að till. eigi einmitt að koma við þetta frv. Í hinu frv. er ekki gert ráð fyrir því sem skilyrði fyrir lækningaleyfi, að maðurinn gegni héraðslæknisstörfum svo lengi, ekkert á það minnzt. Þess vegna er ekki hægt í því frv. að gera ráð fyrir möguleikum; sem liggja fyrir í allt öðru máli. Það, sem mér virðist okkur greina á, mig og hv. þm. Barð. og hv. 2. þm. Rang., er það, að ég vil gera greinarmun á því, hvort læknirinn er í héraðinu af fúsum og frjálsum vilja, eða hann er skyldaður til þess eftir langt nám gegn vilja sínum, því að annars færi hann ekki að stunda lækningar. Hv. þm: Barð. kvað óskandi, að málið kæmist á það stig, að það væru eldri læknar og reyndir; sem vildu fara í þau störf. Ég er því sammála, en þá fer reyndari maðurinn þangað af því, að hann vill það sjálfur. Og hann er ekki þvingaður til að breyta námsáætlun sinni, eins og ungi læknirinn, sem er kannske á leið að verða sérfræðingur í einhverri grein læknavísindanna eftir sitt 11 til 12 ára nám hér. Það veit enginn, hverju þetta kann að muna fyrir ungan mann, sem þarf að sigla til að menntast í sérgrein sinni, ef hann er tafinn í 6 mánuði. Enda hefur það komið fram hjá þessum tveimur hv. þm., að þetta sé neyðarráðstöfun, sem óskandi væri, að aldrei þyrfti að grípa til. En er þá ekki rétt að hafa heimild þessa í því formi, að sem minnst geti skemmt aðstöðu þeirra, sem kröfunni þurfa að hlíta? Og báðar þessar till. ganga í þessa átt. Önnur styttir vinnutímann úr 6 mánuðum í 4 mánuði, en hin tryggir þeim betri laun. Vera má, að hægt hefði verið að ganga lengra til að bæta aðstöðu þessara manna, og hefði verið þess vert, þar sem allir viðurkenna þetta sem neyðarráðstöfun. Hv. 2. þm. Rang. sagði, að þegar kandídat gegndi héraðslæknisstörfum, félli hann ekki undir þessi ákvæði um laun, heldur launalögin. Alveg rétt. En það er gert ráð fyrir því í þessu frv., að hann eigi að gegna læknishéraði ekki sem settur læknir, heldur aðstoðarlæknir héraðslæknis. Í þessu frv. er sérákvæði um kandídata, að leyfið til læknisréttinda sé bundið skilyrðinu um þessa þjónustu: Og það er eingöngu gagnvart þessum mönnum, sem ég vil hafa lágmarkslaun hærri. Og þó að héraðslæknir greiddi aðstoðarlækni a.m.k. 100 kr. eða meira á mánuði, þá sé ég ekki að saki að hafa þetta í 1. Við skulum hugsa okkur kandídat, sem öðlast vill ótakmarkað lækningaleyfi og fer í stjórnarráðið og til landlæknis, en er neitað, nema hann fari fyrst út á land og gegni aðstoðarlæknisstörfum. Hefur þessi maður aðstöðu til að knýja út svo og svo hátt kaup? Alls ekki, því að hann verður sjálfur allt til að vinna að fá sitt lækningaleyfi.

Ég sé ekki, hvers vegna ekki má lögbinda þetta. Þetta ákvæði um launin á að vera í sambandi við þessa gr. 1., því að þetta er sérákvæði; sem þvingar kandidata til að gegna þessu starfi.