15.04.1942
Neðri deild: 35. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (1639)
81. mál, eignarnám hluta af Vatnsenda
*Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Þetta er einfalt mál og líklega enginn ágreiningur um það. Það er talað um að friða allmikið land í nánd við bæinn og reyna að koma upp ræktun, bæði trjárækt og öðru til prýði, svo að bæjarbúar eigi eitthvert friðland að fara á sér til dægrastyttingar. Land þetta hefur verið kallað Heiðmörk. En bærinn hefði þurft að fá leigt og keypt land hjá jörðum hér í nágrenninu, til þess að land bæjarins verði samfelld heild. Það er samkomulag um það, að landið verði látið af hendi fyrir sómasamlega greiðslu, en það, sem á strandar, er það, að í gildi eru ákvæði, sem banna að selja jörðina Vatnsenda, og því þarf að koma sérstakt ákvæði um, að eignarnám megi fara fram, samkv. mati. Það liggja fyrir um þetta mál bréf frá borgarstjóranum í Reykjavík og Skógræktarfél. Íslands, sem hefur heitið myndarlegri gjöf til stuðnings því, að hugmyndin um friðland Reykvíkurbæjar komist í framkvæmd, og eru bréf þessi prentuð sem fskj. með frv. Ég hef engu við það að bæta, sem þar er fram tekið. Vænti ég, að hv. þd. vilji greiða fyrir málinu og vísi því til allshn.