30.04.1942
Neðri deild: 45. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)

84. mál, jarðræktarlög

*Gísli Sveinsson:

Herra forseti ! Ég vil ekki láta þetta mál algerlega fara fram hjá mér, enda þótt ég muni ekki auka mikið á þær umr., sem hér fara fram, eða þrætur um einstök atriði málsins að svo vöxnu. Eins og kunnugt er, hefur þetta mál verið nokkuð á döfinni, og má segja að sumu leyti frá því, er jarðræktarl. frá 1936 voru sett. Því að óánægja með fleira en eitt atriði þeirra reis undir eins og l. komu til framkvæmda. Úr þessu hefur verið reynt að bæta, og hefur búnaðarþing þar átt sinn hlut að máli. Því að búnaðarþing í fyrra hafði þetta mál til meðferðar og reyndar fyrr, og komst að niðurstöðu að nokkru leyti. Það má segja það, að þær niðurstöður, sem eru í frv., sem hér liggur fyrir, eru niðurstöður búnaðarþings, og ég hef í sjálfu sér ekkert við þær að athuga verulega, þó að sumt í þeim geti fundizt, að ekki fari alls kostar svo sem menn hefðu viljað á kjósa. En út í það ætla ég ekki að fara nánar á þessu stigi málsins. Ég geri ekki uppsteyt um einstakar gr. frv., þó að mér virðist, að sumt í frv. hefði átt að vera og getað verið nokkru betur undirbúið. En um þetta frv. hefur myndazt nokkuð ríkt samþykki, og því er siður ástæða til þess að hrófla við því, úr því sem komið er.

En vonbrigði mín eru í sambandi við annað. Þau eru bundin við þá gr. jarðræktarl., sem alla þá stund, síðan þau voru samþ., hefur verið ásteytingarsteinn meðal bænda, 17. gr. l., enda býst ég ekki við, að lengur greinist álit um hana eftir flokkaskiptingu viðkomandi stjórnmálunum yfirleitt. Því að hvar sem maður fer um landið, eru menn orðnir mjög svo sammála um það, að 17. gr. þessara 1. eigi ekki að standa í jarðræktarl. Það er líka svo komið, að forgangsmenn þess, að þetta ákvæði var sett í jarðræktarl., og verjendur lengi, eru komnir að niðurstöðu um það á þann sama veg, og vitna ég um það í orð hv. þm. Mýr., formanns Búnaðarfélags Íslands, sem talaði hér síðast. Því hefur verið haldið fram af þeim, sem andmælt hafa þessari gr., sem er að víssu leyti rétt, að þessi gr. kæmi ekki að því haldi, sem forsvarsmenn hennar vilja vera láta og þeir í upphafi töldu henni til gildis. Og vissulega kemur hún ekki að því haldi, sem henni var ætlað, því að það liggur á allt öðru sviði en svo, að hægt sé með svona löggjöf að ná því marki. En þar sem hún hefur ekki gert það gagn, sem henni var ætlað, kemur þá til álita, hvort hún ekki hefur gert nokkurn skaða. Það væri víssulega góðra gjalda vert, ef með ákvæðum þessarar gr. hefði verið hægt að koma í veg fyrir jarðabrask, því að stemma ber stigu fyrir það. En nú kemur þetta ákvæði ekki í veg fyrir það. Og það er á allt öðru sviði, sem bændur kveinka sér undan ákvæðum þessarar gr. Það er með þessu ákvæði tekinn af þeim fullkominn eignarréttur þeirra yfir jörðum þeirra með öllu, sem jörðunum tilheyrir, sem notið hafa þessa styrks. Áður var sá styrkur, sem bændum var veittur fyrir unnin jarðræktarstörf, veittur sem verðlaun, en styrkur jafnframt til framhaldandi aðgerða. Hann var talinn þeirra eign, og var talinn réttmæt, verðskulduð eign. Það var það, sem menn fundu og virtu, því að það kom mikill skriður á jarðræktarframkvæmdir vegna ákvæða jarðræktarl., eins og þau voru frá öndverðu. Nú finnst bændum aftur sem þeir séu sviptir hvoru tveggja, eignarréttinum og þeirri viðurkenningu, sem með styrknum var veitt þeim.

Þó að með aðferðinni um styrkveitingar þessár sé reynt að taka smátt og smátt af bændum, sem við slíkum styrk taka, það, sem þeir vildu mega telja sína réttmæta eign, þá nær þetta ákvæði 17. gr. ekki heldur tilgangi sínum í því efni að koma í veg fyrir, að braskað sé með jarðir. Það er eins auðvelt að braska með þær, ef ekki auðveldara, að þessu ákvæði lögteknu. Þannig liggur málið fyrir. Og þess vegna urðu mér það mikil vonbrigði, að ekkert hefur verið gert til þess að koma á sæmilegri miðlun í þessu efni, og þá með því að afnema 17. gr., sem að mínu viti er búin að standa allt of lengi í l. En lengi skal manninn reyna. Og lengi skal e.t.v. þráttað af andmælendum þessarar gr., þangað til hið rétta verður viðurkennt. En formenn búnaðarmálanna á búnaðarþingi viðurkenna þó vanmátt þessarar gr. til að koma því til vegar, sem henni í fyrstu var ætlað, og telja sig fúsa til þess að gera tilraun til þess að bæta um með því að setja einhver ákvæði, sem nær væri að gætu náð því takmarki, sem þessi gr. átti að ná, en gat ekki náð. En búnaðarþingi hefur misheppnazt þetta. Það er ekki hægt að draga fjöður yfir það. Það bar ekki gæfu til þess að leysa þetta mikla mál. En formaður Búnaðarfélags Íslands, hv. þm. Mýr., hefur lýst því yfir í mín eyru, bæði innan þings og utan, að hann vildi ganga að því, að þetta atriði yrði leyst. Og hann mun kannast við það, að eiginlega var sætzt upp á þetta. Þess vegna eru mér þetta meiri vonbrigði heldur en ella. Og hæstv. forsrh. lofaði því, að hann skyldi gangast fyrir því, að þetta atriði yrði leyst á búnaðarþingi, því að þá sat þessi n. á búnaðarþingi, sem vitnað hefur verið til. En úr því að svona tókst til, þá hefði búnaðarþingið í vetur átt að taka málið sjálft í sínar hendur og undirbúa það fyrir hæstv. Alþ., svo að við gætum séð, að ekki aðeins hugur fylgdi máli, sem við höfum ekki efað, heldur að þetta mál kæmist í framkvæmd. Því að það, sem okkur hefur mest fundizt vanta í framkvæmdum þessa máls, er forustan um að gera nauðsynlegan undirbúning til löggjafar um málið. Hinir ágætu foringjar í búnaðarmálunum hafa ekki getað tekið sig saman um þetta. Nú hefði ég getað búizt við, að þessir búnaðarþingsmenn, sem sæti eiga hér í landbn., hefðu getað komið því á þar, sem ekki hefði heppnazt á öðrum vettvangi, að þeir yfirleitt gætu orðið sammála um afgreiðslu þessa máls, svo að við væri hlítandi frá sjónarmiði allra þeirra, sem hér eiga hlut að máli. Því að ég veit ekki um neinar óskir um það að halda þessari 17. gr., eins og hún er, hvorki utan þings né innan. Ég á nú ekki sæti í hv. landbn. og get því ekki beitt áhrifum mínum þar.

Búnaðarþing gerði í vetur tilraun til að leysa þetta mál, en mistókst, eins og tekið hefur verið fram. Nú er því hér komin till. um að fella niður þessa 17. gr., og það er hörmulegt, ef það má telja, að þeirri till. muni búin þau örlög að verða felld, þó að allir vilji í raun og veru í hjarta sínu samþ. hana. En mönnum þykir ekki málið vera svo undirbúið, að þeir vilji samþ. hana. En ég held, að ekki væri skaði skeður, þó að 17. gr. væri nú felld úr l. og svo undirbúin ákvæði í hennar stað fyrir næsta þing. blundi það ekki vera hv. þm. betri vegur heldur en að neyða sjálfa sig til þess að greiða atkv. á móti niðurfellingu 17. gr.? Því að það getur ekki munað nema mjög litlu frá því, þó að 17. gr. sé felld niður nú með samþykki allra og þangað til ný gr. væri sett í staðinn með samþ. allra. Þessir. tímar eru líka hættulegir frá sjónarmiði þeirra manna, sem vilja leiðrétta þetta, af því að fasteignamatið kemur nú.

Nú sting ég upp á þessu, hvort ekki muni enn þá vera hægt á þessu stigi málsins að láta nú vera að greiða atkv. um þetta atriði, því að áður en þetta frv. er afgreitt, er enn nokkur tími til stefnu til að tala um þetta atriði og komast að niðurstöðu. Málið er nú við 2. umr., og til 3. umr. mætti athuga brtt. mína betur. Ég vil ekki stofna til þess, að menn þurfi að fella þessa brtt., vegna þess að svona er nú í pottinn búið, að menn vilja í raun og veru vinna saman um þetta. Þetta er till. mín, sem ég vænti, að verði tekin alveg eins og ég meina hana til að koma á samkomulagi.

Það má vafalaust slá því föstu, að sú óáran, sem nú ríkir um fasteignasölur í landinu og voveiflegast horfir gagnvart sveitunum, hún á sér stað um jarðir alveg án tillits til þess, hvort þessi 17. gr. er í l. eða ekki. Menn selja ekki jarðirnar vegna þess, heldur hins, að fólkið fer úr sveitunum. En það er ekki heldur til hróss 17. gr. jarðræktarl., að svo er komið, því að hún gerir ekki neinum gott til þess að halda þeim við búskap, sem eiga jarðir.