13.05.1942
Efri deild: 57. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)

84. mál, jarðræktarlög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Það er ekki af því, að ég ætli að ræða neitt, sem hefur komið fram við þetta frv., að ég tek til máls, heldur af því, að við atkvgr. um þetta mál í gær gerði hæstv. forsrh. grein fyrir atkv. sínu um brtt. mína á þskj. 380 og lýsti því yfir, að samningar stæðu yfir um það mál, nefnilega 17. gr., milli flokka, og því væri óþarfi af mér að bera þessa till. fram. Þar sem ég taldi ekki þinglegt að mótmæla þessu á þann hátt, að ég gerði grein fyrir atkv. mínu, þá vil ég mótmæla því nú. Þetta er alls ekki rétt með farið hjá hæstv. forsrh. Vil ég m.a. benda á, að nú situr ekkert búnaðarþing, sem mér skilst, að helzt ætti að vera sáttasemjari í þessu máli. Umboð búnaðarþingsmanna er ekki fyrir hendi, þar sem kosningar fara fram í vor. Ég vildi aðeins mótmæla þessu, af því að mér gafst ekki tækifæri til þess í gær.

1) Forsrh.: Ég álít, að búnaðarþing ætti að ná samkomulagi um þetta atriði, og þar sem samkomulagsumleitanir standa yfir, segi ég nei.