17.04.1942
Neðri deild: 37. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)

90. mál, hafnarlög fyrir Patreksfjörð

*Flm. (Bergur Jónsson):

Hreppsnefndin á Patreksfirði hefur samið og samþ. hafnarreglugerð fyrir hreppinn, en vitamálastjóri hefur tjáð mér, að hann áliti vafasamt, hvort heimilt sé að setja þessa reglugerð án sérstakra hafnarlaga. Því hef ég flutt þetta frv.

Patreksfjörður er vaxandi þorp með mjög mikilli útgerð, enda liggur hann vel til sjósóknar. Þaðan ganga nú 2 togarar auk fjölda vélbáta, og þar eru starfandi 2 hraðfrystihús. En þorpið vantar tilfinnanlega bátabryggju. Frv. er samið alveg eftir hliðstæðum hafnarl., og hygg ég því ekki, að þörf sé breytinga á því.

Vil ég svo óska eftir, að málinu verði vísað til hv. sjútvn. að lokinni þessari umr.