07.04.1942
Neðri deild: 29. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (1754)

37. mál, byggingar og landnámssjóður

*Haraldur Guðmundsson:

Eins og nál. á þskj. 128 ber með sér, hef ég, eins og aðrir nm., óbundnar hendur um eitt ákvæði í frv., þótt við höfum að öðru leyti verið sammála um ,að mæla með því, að frv. í heild verði samþ.

Um meginatriði frv. vil ég segja það, að ég tel réttlátt og eðlilegt að samþ. þær hækkanir, sem þar er lagt til, að verði gerðar. Þær eru gerðar til að mæta hinum stórkostlega aukna byggingarkostnaði, sem nú er.

Að því er snertir síðustu mgr. 2. gr., eða ákvæðið um það, að ef ábúandi jarðar verður fyrir tjóni af húsbruna, þá skuli nýbýlastj. heimilt að veita sérstakan aukastyrk, vil ég segja það, að ég álít rangt að hafa slíkt ákvæði í þessu frv. Ég get að ýmsu leyti fallizt á það, sem hv. frsm. sagði um þörf og nauðsyn þess, að mönnum sé hjálpað, ef þeir verða fyrir tjóni af húsbruna, eins og hér er gert ráð fyrir. En þær ástæður, sem hann kom fram með til þess að bæta úr þessu, eiga við hvern þann mann, sem hefur vanrækt að tryggja eignir sínar nógu hátt. Ég held, að það sé misráðið að hvetja menn til að vanrækja að brunatryggja eignir sínar, en það væri beinlínis gert með því að lofa þeim styrkjum þeim, sem hér um ræðir. Ég álít, að menn, sem fá þennan styrk, verði sjálfir að gæta þess að tryggja fasteignir sínar og lausafé þannig, að rétt sé miðað við það verð, sem hlutirnir eru f, og um það eigi að gilda það sama og um aðra menn.

Í sambandi við þetta vil ég leyfa mér að flytja brtt., ef hæstv. forseti leyfir það.