07.04.1942
Neðri deild: 29. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (1755)

37. mál, byggingar og landnámssjóður

Forseti (JörB):

Hv. þm. Seyðf. hefur afhent mér skrifl. brtt. við 2. gr. frv. þess efnis, að næstsíðasta málsgr. falli niður. — Þessi brtt. er of seint fram komin og auk þess skrifleg, og verður því að veita tvenn afbrigði frá þingsköpum, til þess að hana megi taka til meðferðar.