07.04.1942
Neðri deild: 29. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)
37. mál, byggingar og landnámssjóður
*Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég sé nú ekki ástæðu til að. tala langt mál um þetta. Ég býst við, að hv. þdm. átti sig á því, hvaða skoðanamunur er á milli mín og hv. þm. Seyðf., eða meiri hl. n. og hv. þm. Seyðf.; um þessa brtt., sem hann hefur nú lagt hér fram.
Ég skal geta þess, að ég tel það ekki rétt að orði komizt hjá hv. þm., að þetta sé einungis gert vegna þess, að menn hafi vanrækt að brunatryggja eignir sínar nægilega hátt. Eins og hv. þm. er sjálfsagt kunnugt, þá eru fastar reglur um, hvað hátt er hægt að brunatryggja fasteignir. Menn fá ekki að tryggja þær hærra en þær eru verðar eftir ákveðnum reglum. Og eins og ég sagði áðan, eru byggingar svo lágt metnar í sveitum, að það getur verið algerlega ókleift, ef um efnalitla menn er að ræða, að koma sér þeim upp aftur. Og það eru mörg dæmi til þess á síðari árum, að jarðir hafa lagzt í eyði, af því að menn hafa misst bæði hús sín og lausafé og af því að þeim hefur ekki verið veittur frekari stuðningur til þess að endurbyggja. Ég hefði vel getað fallizt á eitthvert samkomulag við hv. þm. Seyðf., ef um það er að ræða, að menn tryggi ekki lausafé sitt eða annað sakir vanrækslu. Og ég vil meira að segja setja það í l. sem skilyrði, að menn fengju ekki þessa styrki nema með því að vátryggja lausafé sitt að einhverju leyti. En ástæðan getur verið nægilega mikil fyrir því. Tjónið getur verið svo gífurlegt, að brunabætur nái skammt.
Ég hef ekki trú á, að þetta ákvæði frv. gæti orðið til þess, að menn vanræktu frekar að vátryggja eignir sínar. Hér má ekki vera um svo háan aukastyrk að ræða, að slíkt gæti komið fyrir, og mundi heldur aldrei verða. Fyrst og fremst er styrkurinn bundinn því ákvæði, að hann má aldrei fara fram úr 1/3 af kostnaðarverði byggingar eða umbóta. Nú er styrkurinn aldrei svo mikill. En ef maður skyldi nú segja, að hann yrði notaður út í það ýtrasta, þá væri tjónið, sem menn yrðu fyrir í lausafé, nægilega mikið til þess, að enginn mundi láta sér detta í hug óþarfa vanrækslu í þessu efni. Ég vil því, fyrir mitt leyti, leggja til, að þessi brtt. hv. þm. Seyðf, verði felld, ef hann þá ekki gæti fallizt á að taka hana til 3. umr., svo að hægt væri þá kannske að komast að samkomulagi um frekari takmarkanir, sem hv. þm. gæti sætt sig við, því að það er síður en svo að ég ætlist til að gengið sé of langt í þessu efni og gefið fordæmi, sem hættulegt geti talizt.