13.05.1942
Neðri deild: 57. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (1784)

37. mál, byggingar og landnámssjóður

*Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Landbn. hefur borið fram brtt. á þskj. 399 við atriði, sem hv. Ed. hefur breytt, síðan frv. var á ferðinni hér, og n. getur ekki fallizt á. Í 9. gr. l. er ákveðið, að hámarkslán til endurbygginga sé 6 þús. kr. á býli. Landbn. þessarar d. lagði til að fella burt ákvæðið, því að verðlag byggingarefnis hefur breytzt svo mjög, að það stenzt með engu móti. En hv. Ed. hefur viljað setja hámarkið inn aftur og hefur það nú 7500 kr., eða aðeins 25% hærra en áður var. Þetta þykir okkur enn alltof lítið og leggjum til í brtt. 399,1, að hámarkið sé 9 þús. kr. Sumir hefðu viljað fara mun hærra, en n. vildi ekki hrekja frv. milli d. og vekja deilur nema sem minnst og bjóst við, að Nd. hlyti vegna fyrri afstöðu að fallast á hámark þetta og Ed. láta svo búið standa. Ég vil geta þess, að í brtt. 399,1 hefur misprentazt 7500 fyrir 9000, og leyfi ég mér að bera fram skriflega brtt. til að laga það.

Í síðari tölulið brtt. 399, sem leiðir í rauninni af hinum fyrri, leggjum við til, að fellt sé úr 1. það hámark, að lán og styrkur saman megi ekki fara fram úr 10500 kr. á býli. Ef fyrri liðurinn væri samþ., þýddi það, að styrkur mætti ekki fara fram úr 1500 kr. En eftir frv. og l., eins og þau eru, er grundvallarstyrkur ákveðinn 1500 kr. og hækkar eftir sérstakri verðvísitölu húsabygginga, og fer hún eftir verðlagi á hverjum tíma. Þetta hámark virðist því með öllu óþarft, og leggur n. til, að það verði fellt burt.