05.05.1942
Efri deild: 49. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (181)
40. mál, læknisvitjanasjóður
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Um málið hef ég í raun og veru lítið að segja fyrir hönd allshn. N. hefur fallizt á, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það kom frá Nd. Í Nd. voru gerðar nokkrar breyt. á frv., en þær breyt. skipta litlu máli, og enda þótt við hefðum fremur kosið, að frv. væri óbreytt eins og það var fyrst. þá hefur þessi aðalbreyt. þó mikið til síns máls. Málið er mikil nauðsyn, því að stuðla ber að því, að læknisvitjunarsjóðir komist upp í sem flestum læknishéruðum.