11.05.1942
Efri deild: 54. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)
43. mál, húsaleiga
*Fjmrh. (Jakob Möller):
Ég get frætt hv. 1. landsk. um það, að þetta frv., sem ríkisstj. bað allshn. Nd. að flytja, er samið í stjórnarráðinu af einhverjum bezta lögfræðingi, sem þar er á að skipa, og hann segir í grg. þess, að undanþáguákvæði 2. gr. l. nr. 126 frá 1941 um leigu á íbúðarhúsnæði til utanhéraðsmanna séu í fyllsta samræmi við undanþáguákvæðið, — sem frv. fer fram á. Ég er sjálfur enginn lögfræðingur, og þótt ég hefði einhverja hvöt til. þess að koma fram sem lögfræðingur, gerist þess nú ekki þörf, og deildin mundi ekki mikið á því græða, þótt við hv. l. landsk. færum að deila um lagaskýringar.