19.05.1942
Efri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (1915)

91. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

*Frsm. (Ingvar Pálmason):

Sjútvn. deildanna hefur borið nokkuð á milli um 2 atriði í þessu frv. Fyrra atriðið er ákvæði 5. gr. um hámark þeirrar tryggingar, sem félögin mega hafa í eigin ábyrgð, og hitt atriðið er ákvæði í 29. gr. um það, að félögunum sé óheimilt að nota skipstjóra, sem hafi þrisvar orðið fyrir bótaskyldu tjóni á skipi.

Um þessi atriði var mjög róttækur ágreiningur, en það varð að samkomulagi, að n. gengu saman á samkomulagsfund, og má heita svo, að þær breyt., sem n. leggur til, að gerðar verði við þessa einu umr., séu samkomulagstill., a.m.k. hámarkið, og að nokkru leyti breyt. við 29. gr. líka. Hins vegar eru nm. úr báðum d., sem eru óánægðir með þessar till., en það hefur orðið úr, að meiri hl. þessara n. deildanna (einn nm. var þó veikur) leggur til, að frv. sé samþ. Það sé ekki gerandi að hætta, því til Sþ.