20.05.1942
Efri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)

46. mál, Brunabótafélag Íslands

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv. um breyting á l. um Brunabótafélag Íslands er samið af forstjóra félagsins og flutt af allshn. Nd. eftir tilmælum hans. Frv. gerir ráð fyrir nokkrum breyt. á núgildandi l., og auk þess eru færðar inn í frv. breyt., sem gerðar hafa verið á l. frá 1932 og 1938. Helztu breyt., sem máli skipta, , í þessu frv. eru þær, að ríkisábyrgð sú, sem verið hefur í I. til tryggingar skuldbindingum félagsins, er felld úr l., og eru færð rök fyrir því í grg. frv. Það mun mega teljast algerlega óþarft að hafa þetta ákvæði lengur í lögum. Á s.l. hausti var varasjóður félagsins orðinn 4.7 millj. kr.

Þá er einnig breytt greinunum, sem eru um tilgang og starfsvið félagsins, og er það í samræmi við þá þróun, sem orðið hefur á starfsemi félagsins. T.d. hefur verið í l. hingað til, að starfsvið félagsins hefur ekki náð til Reykjavíkur. En nú er svo komið, samkv. þessari breyt., að félagið er þátttakandi í tryggingum allra húsa í Reykjavík. Og þá er um leið gert ráð fyrir, að félagið öðlist rétt til þess að taka einnig í eldsvoðaábyrgð lausafé. Þá er flokkaskiptingu innan félagsins breytt þannig, að hún er nú nokkuð á annan hátt en eftir núgildandi l., og er það vegna hins aukna starfsviðs félagsins. Þetta er nú sett í samræmi við það, hvernig félagið nú starfar.

Þá er einnig breytt ákvæðunum um það hámark, sem félagið má hafa í eigin tryggingu án endurtryggingar, og var það svo upphaflega í frv., að um það voru ekki neinar ákveðnar takmarkanir, heldur var það á valdi stjórnar félagsins, hve mikið félagið mátti hafa í eigin ábyrgð án endurtryggingar. En hv. Nd. hefur breytt þessu ákvæði þannig lagað, að hún hefur tiltekið hámarkið á þeim tryggingum, sem félagið megi taka ábyrgð á mest, án endurtryggingar, og er það nánar ákveðið í 6. gr. frv. Og mér er óhætt að fullyrða, að forstjóri trygginganna sætti sig við þau ákvæði eins og þau nú eru í 6. gr.

Þá er hér um að ræða það nýmæli, að í frv. er gert ráð fyrir, að félagið öðlist sama rétt og t.d. Landsbanki Íslands um það, þegar fullnægja þarf kröfum félagsins í byggingum, þannig að ekki þurfi að fara fram lögtak í byggingunni, heldur megi ganga að veðinu. Lögtak þarf því ekki að fara fram. Í grg. frá forstjóra félagsins Segir, að í reyndinni muni aldrei hafa til þess komið, að nauðungarsala færi fram vegna brunabótagjalda einna. En hafi gjaldþrot orðið og fjárnám verið gert í eign, hefur brunabótafélagið vitanlega gert sínar kröfur gildandi.

Nú er í l. heimilað að taka dráttarvexti af iðgjöldum, ef ekki eru greidd á réttum tíma. Það var eina atriðið, sem allshn. þótti orka mikils tvímælis um, hvort ekki gengi of langt, því að í 11. gr. l. eru vextirnir ákveðnir ½% á mánuði, og það getur komið þungt niður á ýmsum, er illa stendur á. Að vísu má segja, að þetta sé ekki óeðlilegt aðhald, — má deila um, hversu nauðsynlegt sé, — og n. vill alls ekki raska við ákvæðinu nú, því að hún telur það mikilsvert, að tryggt sé, að frv. verði að l. á þinginu.

Þá er nýtt ákvæði um, að félaginu sé heimilt að úthluta ágóðahlut. Það byggist á því, að hagur félagsins hefur farið síbatnandi. Geta menn séð það sjálfir, að vextir af nær 5 millj. kr. muni veita ólíkt betri fjárráð en félagið hafði í fyrstu með iðgjöldunum einum, meðan það var að vinna sig fram. Það er gert ráð fyrir, að ágóðinn sé greiddur í deildum. Hvert bæjar- eða sveitarfélag telst sérstök deild í félaginu, og skal ágóðahlutinn greiddur deildunum til ráðstöfunar, en ekki einstökum vátryggjendum. Ákveða má, að deildirnar séu í tveim flokkum, sveitir í öðrum, kaupstaðir í hinum, og verður misjöfn úthlutun í flokkunum og deildum innan þeirra eftir því, hve tjónin hafa orðið mikil móts við iðgjöld þeirra. Ekki er gert ráð fyrir arðsúthlutun af lausafjártryggingum, heldur megi, að fenginni reynslu, lækka iðgjöld þeirra.

Þá ber loks að nefna heimild í frv. til sjóðstofnunar, eftirlaunasjóðs þeirra, er vinna við fyrirtækið. Í sjálfu sér er það ekki óeðlilegt og er altítt í hálfgerðum ríkisstofnunum, sem hafa sjálfstæðan fjárhag. — Ég hef nú lýst þeim viðhótum, sem í frv. felast. N. mælir með að samþ. frv. óbreytt, þótt hún hefði haft tilhneigingu til að gera brtt. um ýmis smærri atriði þess, ef hættulaust hefði verið fyrir afgreiðslu þess nú í þinglokin.