06.05.1942
Neðri deild: 52. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)
20. mál, framkvæmdasjóður ríkisins
*Einar Olgeirsson:
Ég hef áður sagt það, að mér fyndist þetta frv. bera vott um skilningsleysi hjá mörgum þm. á því, hvað þarf að framkvæma. Nú, þegar 17 millj. kr. tekjuafgangur er hjá ríkissjóði, eins og var s.l. ár, þá dettur þessum þm. í hug, að nú sé einmitt tækifæri til þess að stofna framkvæmdasjóð. Það virðist svo sem fyrst og fremst þurfi peninga til þess að ráðast í slíkt fyrirtæki, peningarnir séu fyrst og fremst það, sem til þess þarf, sem gera skuli. Hins vegar höfum við hér á Íslandi, síðustu 12 árin, haft nægilegt vinnuafl til þess að ráðast í verklegar framkvæmdir. Vinnuaflið í landinu er óhagnýtt rétt eins og afl fossanna. Alþingi hefur ekki viljað hagnýta þetta afl. Í áratug hafa þúsundir verkamanna gengið atvinnulausir, en engu að síður hefur Alþingi ekki viljað gefa þeim tækifæri til þess að neyta orku sinnar, sjálfum sér og þjóðinni til hagsældar.
Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu hér. Ég held, að meiri hl. þingsins þurfi að venja sig af þeim hugsunarhætti, sem hann er nú haldinn af, ef einhverju raunhæfu á að koma til vegar í atvinnulífi landsins.
Við þm. Sósfl. lögðum til hér á Alþingi 1939, að gerðar væru ráðstafanir til þess að hefja nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar, — hrinda af stað framkvæmdum, svo að vinnuaflið hagnýttist, reyna eftir megni að útvega erlend efni, sem til þess þyrftu, reyna heldur að spara eitthvað annað: Við bentum á, að þjóðin yrði að keppa að því að verða sjálfri sér nóg og óháð, þegar stríð skylli á, sem við bentum líka á, að væri óumflýjanlegt. Þessum till. var þá ekki sinnt. Nú fyrst, þegar vinnuaflið í landinu er ekki til, er farið að hugsa um þetta. Ég vildi segja þetta fyrst í sambandi við þetta frv. um framkvæmdasjóðinn. Skal ég svo koma að honum sjálfum.
Það má margt um það segja, hvað gera skuli við það fé, sem ríkissjóður hefur afgangs. En mér finnst grg. meiri hl. fjárhn. um tilgang og verkefni sjóðsins fram úr hófi losaraleg, og fer fjarri því, að hún afmarki þá stefnu, er fylgja á í þessum efnum. Í þessu nál. segir m.a. svo, með leyfi hæstv. forseta: „Viðfangsefnin, sem þarf að leysa, eru mörg. Ný heimili þarf að reisa í sveitum og við sjó og auka ræktun landsins í stórum stíl. Víða í sveitum vantar símalínur, rafstöðvar, vegi og brýr. Nýjar verksmiðjur þarf að byggja, svo sem áburðarverksmiðju, sementsverksmiðju, verksmiðjur til fullkomnari hagnýtingar á sjávarafurðum Skólahús vantar í sveitum og kaupstöðum. Enn má nefna hafnarmannvirki og vitabyggingar“ Og enn fremur í sama nál. segir svo, þegar rætt er um afkomuna eftir stríðið: „Þá verður hins vegar brýn þörf að stofna til framkvæmda til stuðnings atvinnuvegum landsmanna í þeim erfiðleikum, sem vafalaust sigla í kjölfar styrjaldarinnar.“
Ef á að fullnægja öllum þeim atriðum, sem þarna eru talin upp, er enginn munur á þessum sjóði og sjálfum ríkissjóði. Hann á að gera allt mögulegt, leggja símalínur, reisa rafstöðvar, leggja vegi, reisa brýr o.m.fl. Ríkissjóður ver árlega stórfé t.d., til vega og brúargerða í landinu. Á hverjum einustu fjárlögum eru áætlaðar fjárupphæðir í þessu skyni. Það er því alveg auðsætt mál, að ekki á að taka fé til slíkra framkvæmda úr framkvæmdasjóði. — Þessi sjóður á ekki að vera til þess að hlaupa undir bagga með gjaldendunum í landinu í framtíðinni, svo að þeir þurfi minna að greiða til ríkisins, til þess á ekki að fara sá tekjuafgangur, sem nú er, heldur á þessi sjóður að fara til nýsköpunar í atvinnulífi þjóðarinnar og til þess að lyfla stórum átökum, t.d. reisa áburðarverksmiðju, annaðhvort sem eign ríkisins eða sem blandað hlutafélag, þannig að borgararnir eigi allt að helming í henni, reisa sementsverksmiðju, ef fært þykir, skipasmíðastöð o.fl., yfirleitt stuðla að því, að hér geti rísið upp blómlegur atvinnurekstur, er reistur sé á heppilegum grundvelli með þörf þjóðarinnar fyrir augum. Sjóðurinn á að takmarkast við hin stóru, átök, en ekki vera til þess að létta skattabyrðinni af borgurunum. Að öðru leyti er ég og þm. Sósfl. þessu máli fylgjandi, en ég mun bera fram brtt. við 3. umr. um, að tilgangur sjóðsins verði skýrt afmarkaður við það, er ég hef nú lýst. Afstaða okkar til málsins mun svo fara eftir því, hvernig þeim till. reiðir af.
Viðvíkjandi 3. gr., um 5 manna nefndina, veri ég að segja það, að ég er nú orðinn langþreyttur á þessum nefndum a.m.k. hef ég enga trú á því, að nefnd, sem Alþingi kýs, sé neitt betri heldur en t.d. fjvn. hér í þinginu. Ef tillögur þessarar nefndar eiga að vera vel undirbyggðar, væri miklu nær að velja hana utan þings. En sem sagt, ég mun greiða frv. atkv. við þessa umr., en afstaða mín við 3. umr. fer eftir því, hvernig brtt. þeim, er ég ætla að bera fram við frv., reiðir af.