16.05.1942
Efri deild: 59. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (2010)

20. mál, framkvæmdasjóður ríkisins

*Atvmrh. (Magnús Jónsson):

Eins og hv. frsm. meiri hluta n. minntist á, þá var fjhn.

ekki sammála um þetta frv. Og þó að ekki séu nú nema tvö nál., þá er samt sem áður sitt álitið frá hverjum nefndarmanni. Mætti því segja, að n. sé í raun og veru þríklofin um þetta stóra mál. Og það hefur verið sagt í gamni, og ekki að ástæðulausu, að það færi bráðum að skyggja á stjórnarskrármálið þetta mikla ágreiningsmál hér um þennan sjóð.

Eins og stendur í þessu stutta nál., sem ég hef skrifað um þetta mál, þá er ég alveg sammála þeim aðalröksemdum, sem færðar eru fyrir þessu frv., að ríkissjóður muni þurfa á ákaflega miklu fé að halda að stríðinu loknu eða kannske fyrr. Sú hugsun er því jöfn hjá okkur öllum, að það þurfi að halda vel á þessu fé, sem nú hefur safnazt í ríkissjóðinn. En það, sem okkur greinir á um, er, að ég sé ekki, að þessa hugsun verði á neinn hátt náð að framkvæma með þess frv. Frv. er frekar bollaleggingar um að leggja þetta fé til hliðar. En það yrði þó ekki lagt til hliðar eftir frv. öðruvísi heldur en fé ríkissjóðs er lagt til hliðar, þannig að það er geymt í banka, hvort sem partur af því er kallaður framkvæmdasjóður eða ekki eða það er bara allt kallað ríkissjóður. Og þegar sagt er, að því verði ráðstafað af Alþ., þá er slíku fé aldrei öðruvísi ráðstafað en af Alþ. Og þó að það þing, sem situr á þessu ári, sé með bollaleggingar um það, að þessu fé skuli varið að stríðinu loknu í þessu eða hinu skyni, þá er a.m.k. hætt við því, að það verði haft að litlu, ef einhver af síðari þingum vilja breyta þessari ákvörðun. Mér finnst það galli á þessu frv., að það er til tekið í því, að það skuli „að styrjöldinni lokinni“, svo sem þar að öðru leyti greinir, verja fé þessa sjóðs. Það er augljóst, að það vakir fyrir hv. flm. frv., að það geti alls ekki komið kreppa fyrr en að styrjöldinni lokinni. En það er opinn möguleiki til þess, að kreppa geti komið fyrr heldur en að styrjöldinni lokinni, þannig að einnig fyrir þann tíma þurfi að taka til þessa, fjár. Ef t.d. lokast siglingaleiðir, þá hefst þegar í stað kreppa. Og margt getur komið annað til þess, að blómatíminn í fjármálunum verði úti fyrr en að stríðinu loknu. Það er því ekki tiltækilegt að setja þetta ákvæði inn í löggjöf, að þessu fé skuli ekki varið til þess, sem þar er til tekið, fyrr en að styrjöldinni lokinni.

Ég held, að þetta frv., þó að að l. yrði, sé alveg þýðingarlaust. Alþ. mun, hvort sem er, verða að taka til sinna ráða um að taka til þessa fjár, ef nauðsyn ber að dyrum. Og það getur það alveg jafnt, þó að þessi l. séu sett, því að hæstv. Alþ. getur breytt þessum l. og mun gera það, ef þörf krefur. Ég hef út af fyrir sig ekki viljað leggja það til, að þetta frv. verði fellt, því að ég fellst alveg á hugsun þá, sem liggur á bak við það. Það, sem má segja, að kannske helzt hefði getað orðið til þess að halda utan að þessu fé, var sú n., sem upphaflega var í frv. lagt til, að kosin yrði af sameinuðu Alþ. til þess að hafa umsjón með þessum sjóði. En það er þó ekki sagt, að þessi n. mundi gera það eða vilja það, ef á annað borð ætti að taka þetta fé til einhverra neyðarráðstafana. En þar hefði þó verið skipað eitthvert landvarnarráð fyrir þennan hluta af ríkissjóði, þar sem þessi n. hefði verið. En ég kann illa við að skipa n. yfir hluta af ríkissjóði.

Ég sé, sem sagt, enga ástæðu til að leggja til, að frv. verði fellt, því að hugsun þess er ég í raun og veru sammála. Hins vegar tel ég, af því, sem ég hef tekið fram, þýðingarlítið að samþ. það, og hef ég því lagt til í mínu nál., að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.