16.05.1942
Efri deild: 59. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)
20. mál, framkvæmdasjóður ríkisins
Erlendur Þorsteinsson:
Herra forseti ! Mér virðist nú eiginlega, að eftir ræðu hæstv. atvmrh. mætti álykta, að n. hefði verið sammála, en ekki klofin um þetta mál. Hún viðurkenndi meginhugsun frv., en um ágreiningsatriði málsins var n. klofin. Reyndar má líka segja, að það sé rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að n. væri þríklofin, vegna þess að ég hef líka ákveðna hugmynd um það, hvernig ég vildi, að þessu máli yrði ráðið til lykta. En mér er ekki kunnugt um þá afstöðu, sem meðnm. mínir hafa til þeirrar brtt., sem ég hef borið fram við frv.
Út af því, sem hæstv. atvmrh. sagði, að ekki væri rétt að breyta frv. eða samþ. það, því að þó að sett væru ákvæði í l. um meðferð þessa sjóðs, væri það þó alveg á valdi þingsins að ráða yfir honum fyrir því, þá má segja, að þetta sé rétt, og er svo um hvaða l., sem eru sett á hæstv. Alþ., að Alþ. hefur vald til þess að breyta þeim I. Þetta út af fyrir sig eru því engin rök gegn því að samþ. eitthvert frv. eða lagaákvæði, þó að síðari þing geti breytt þeim. Það hefur sýnt sig, sérstaklega þegar um fjárhagsmál hefur verið að ræða, að l. hefur verið breytt á Alþ., t.d. l. um skemmanaskatt, þar sem skemmtanaskattinum átti að verja til byggingar þjóðleikhússins, er hæstv. Alþ. taldi rétt að taka til ríkissjóðs vegna fjárhagsvandræða hans. Þar af leiðandi gæti það orðið eins með þetta fé, ef þeir tímar kæmu, að það þyrfti að taka það til ríkissjóðs. Það yrði þá metið af hæstv. Alþ., hvort nauðsyn væri á þeirri ráðstöfun eða ekki. Vegna þessa finnst mér, að hv. d. geti verið sammála um það að samþ. þetta frv. og það verði þá rök með því að samþ. það, en ekki á móti því, að hæstv. Alþ. geti breytt ákvæðunum um tilhögun á þessu fé, ef nauðsynlega þyrfti á að halda.
Við í meiri hluta n. teljum rétt, að það komi í ljós, hvort ekki sé til staðar ákveðinn vilji þingsins um það, að því fé, sem safnazt hefur í ríkissjóðinn í undanfarandi góðæri — frá sjónarmiði ríkissjóðsins — að setja einhverjar hömlur á um meðferð þess, þannig að nokkuð af því sé lagt til hliðar til þess að mæta þeim erfiðleikum, sem menn búast við, að mæti þjóðinni í næstu framtíð, eða a.m.k., þegar styrjöldinni er lokið. En það, sem okkur, hv. frsm. meiri hluta n. og mig, greinir á um, er, að ég vil setja nánari ákvæði um það, hvernig þessu fé skuli varið, og vil ég, að það sé tekið fram í 1. gr. þessara l. Ég vil að þessu fé verði sérstaklega varið til þess að stofna nýjar framleiðslugreinar, sem upp eru taldar í brtt. minni, sem ég tel nauðsynlegar til þess að auka atvinnulífið, og á þann hátt að fullnægja þörfum landsmanna að stríðinu loknu. Mætti vitanlega segja um þetta langt mál. En það sjá allir, sem hugsa málið, að þegar hin mikla setuliðsvinna, sem nú er, hverfur, þá reynir á dug landsmanna til þess að finna nýjar leiðir til atvinnu fyrir þann fjölda manna, sem þá missir atvinnu sína. Nú er mikill hluti framleiðslutækja þjóðarinnar í vinnu hjá þessu setuliði, sem losnar, þegar setuliðið hverfur héðan, sem væntanlega verður þá hægt að beina inn á þær brautir að auka framleiðslu landsmanna sjálfra. En þeir er ljóst, sem til þekktu, áður en styrjöldin brauzt út, að hér var hópur atvinnuleysingja, sem þurfti og þarf, þegar hætt er við, að hann myndist aftur, að sjá farborða. Hætt er við, að þessi atvinnuleysingjahópur verði ekki minni hér að styrjöldinni lokinni heldur en fyrir hana, vegna þess að hér hafa myndazt ýmsar atvinnugreinir í landinu og aðrar varið stórkostlega, sem eru algerlega tímabundnar við dvöl setuliðsins hér á landi og hljóta því að falla niður eða minnka, þegar setuliðið hverfur héðan. Þess vegna er nauðsynlegt, að fé verði fyrir hendi á þeim tíma til þess að mæta afleiðingunum af þessu. Það kemur fram í nál. meiri hlutans, að þetta sé líka vilji Framsfl. Hann leggur til, að varið verði 3 millj. kr. af tekjuafgangi ársins 1941 í ákveðnu augnamiði, sem sé til þess að koma upp nýjum fjárstofni, en sem gæti heyrt undir ákvæði þessa frv. um framkvæmdasjóð, samkv. 1. gr. þess, eins og hún er nú; þar sem tekið er fram, að hlutverk þessa sjóðs sé að veita fé til nauðsynlegra framkvæmda í þarfir atvinnuveganna, að styrjöldinni lokinni. Um það blandast engum hugur, að það er í þarfir atvinnuveganna að koma upp nýjum búfjárstofni, ósýktum og heilbrigðum. Hv. þm. hafa séð nauðsyn á því að taka þetta út úr og ákveða nánar um það, til hvers þessu fé skuli varið. Þeir eru þar alveg á sömu línu sem ég í brtt. minni, nema að því leyti, að hér er um tvenns konar ólík verkefni að ræða. Mér virðist því, að það gæti orðið samkomulag um að samþ. brtt. mína og einnig um að afgr. þetta frv. sem I. frá hæstv. Alþ.