18.05.1942
Efri deild: 60. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

20. mál, framkvæmdasjóður ríkisins

Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):

Eins og menn muna, var þessu frv. breytt við 2. umr. svo, að við 1. gr. frv. var bætt nokkurri upptalningu um það, til hvers ætti að verja fé framkvæmdasjóðs ríkisins, í stað þess, að áður var ætlazt til, að ákvörðun um það yrði tekin af Alþ., þegar þar að kæmi. Ég lét þess þá getið, að ég teldi ekki þörf að samþ. þessa till., þó að ég legðist ekki á móti því, því að í frv. væri heimild til alls þess, sem brtt. fjallaði um. Ég gat þess enn fremur, að ef breytt væri á annað borð, teldi ég rétt að hafa upptalninguna nokkuð fyllri, og að ég mundi bera fram brtt. í þá átt. Ég hef nú gert það, á þskj. 441, um, að inn í upptalninguna sé bætt, að fé framkvæmdasjóðs skuli og varið til ræktunar og býlafjölgunar í sveitum. Úr því að farið var að telja upp verkefni sjóðsins, má þetta ekki niður falla, því að ég álít, að það verði eitt allranauðsynlegasta viðreisnarstarfið. Fólkið hefur streymt úr sveitunum þangað, sem setuliðin hafa bækistöðvar, og það er fjöldi fólks, sem nú byggir afkomu sína á vinnu hjá setuliðunum. Veitingastöðum í Reykjavík hefur fjölgað um tugi o.s.frv. Hvað verður um þetta fólk, þegar sú atvinna hverfur? Hér í Reykjavík eru íbúarnir orðnir yfir 40 þús. Að vísu er togaraútgerðin hér, og svo hefur Reykjavík þá sérstöðu að skattleggja verzlunina yfir allt landið, en samt virðist atvinnuleysi óhjákvæmilega vera framundan. Reynslan er sú, að þeir, sem eru einu sinni komnir til bæjarins, taka sig ógjarna upp aftur, en ég tel ekki óhugsandi, að þeir, sem eru nýfluttir hingað í setuliðsvinnu og kunna enn öll vinnubrögð í sveitum, vildu flytja til sveitanna aftur, ef þar væru lífsmöguleikar fyrir þá. Þess vegna er till. mín fram borin. En hvað sen um þetta er, er þó það víst, að fólkinu fjölgar. Það er eðlileg fjölgun í sveitinni, ef fólkið ekki flytti til sjávarsíðunnar, og það verður áreiðanlega það ástand eftir stríðið, að bæirnir geta ekki bætt við sig fólki ofan úr sveit.

Úr því að farið er að telja upp verkefni framkvæmdasjóðs ríkisins, þá finnst mér ekki mega vanta þetta atriði, og ég set það efst. Ég veit, að í núgildandi l. hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til þess að auka ræktun og fjölga býlum, og þær ráðstafanir eru góðar, ef ég er sannfærður um, að það ástand skapast hér síðar, að þessar ráðstafanir verða ekki nægjanlegar, og þess vegna tel ég þurfa meira fé í þessu skyni en gert er ráð fyrir í l. — Ég hygg þess vegna, að brtt. mín hafi fullan rétt á sér.