04.05.1942
Efri deild: 48. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)

56. mál, sala Hólms í Seltjarnarneshreppi

Páll Zónhóníasson:

Ég vil benda á, að ég tel óheimilt að selja þjóðjarðir og kirkjujarðir, og það mun bannað með l. Þess vegna tel ég óheimilt að selja Mosfellssveitarhreppi þessa umræddu jörð, þótt hann vildi kaupa, nema með sérstakri heimild í l.

Það er alveg rétt, að bæjarstjórn tekur með velvilja að selja þetta land, en þar við situr. Aðeins velvilji, en engar framkvæmdir. Það væri æskilegt, ef bæjarstjórn vildi sýna dálítið meira en velvilja, svo að eitthvað væri hægt að gera. Ég legg svo til, að bærinn fái ekki Hólmsland nema með hinum umræddu skilyrðum.