05.05.1942
Efri deild: 49. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)
56. mál, sala Hólms í Seltjarnarneshreppi
*Magnús Jónsson:
Þessu máli var frestað í gær til þess að fá upplýsingar um frá bæjarins hálfu, hvort bærinn vildi selja ríkinu landspildu af Knútskoti. Ég hef í millitíðinni átt tal við borgarstjóra um þetta, og hann taldi fyrir sitt leyti eðlilegt, að þessi sala færi fram. Það var aðeins eitt atriði, sem borgarstjóri var í vafa um, sem sé, að ef til vill mundi bærinn áskilja sér rétt til að halda strandlengjunni, sem er í þessu landi. Enda ætti það ekki að rekast neitt á, því að tilraunastofnunin á Keldum ætti ekki að þurfa á strandlengjunni að halda. — Ég vona svo, að ekkert sé nú til, fyrirstöðu því, að þetta smáfrv. verði —samþ. breytingalaust.