05.05.1942
Efri deild: 49. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)
56. mál, sala Hólms í Seltjarnarneshreppi
Páll Zóphóníasson:
Ég sé enga ástæðu til þess að taka brtt. aftur, því að enda þótt þetta land fáist, þá er þó ekki samþ., að bærinn fái allan Hólm. Ef til vill gerir hreppurinn kröfu til forkaupsréttar síns, en af því að ég hygg, að ekki megi selja þessa jörð hreppnum, nema sérstök heimild sé fyrir því í l., þá tek ég brtt. ekki aftur, nema yfirlýsing komi frá hæstv. ráðh. um, að hann telji, að Mosfellssveit eigi forkaupsrétt sinn og hann muni selja henni það land af Hólmslandi, sem sé innan hreppstakmarka Mosfellssveitar.